Fréttablaðið - 16.11.2022, Blaðsíða 11
Fyrirtæki sem velja umhverfisvæna innheimtu
Nánari upplýsingar má finna á gjaldskil.is
Laufið
Umhverfisvæn - Skilvirk - Traust
Settu innheimtuna í traustar hendur Umhverfisvæn
Skilvirk
Traust
Gjaldskil er innheimtufyrirtæki sem býður heildstæðar lausnir við innheimtu krafna
allt frá fruminnheimtu til löginnheimtu.
Þjónusta okkar byggir á langri reynslu starfsmanna okkar, sem búa yfir mikilli
fagþekkingu á breiðu sviði rekstrar og þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga.
Auk þessa hefur fyrirtækið tæknilega getu til að takast á við stór og flókin
innheimtuverkefni.
Við störfum með leyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Mikilvægt er að viðhalda góðu sambandi milli kröfuhafa og greiðenda og margþættar
ástæður geta legið að baki þess að greiðandi hefur ekki innt greiðslu af hendi fyrir
eindaga. Við erum því til taks fyrir bæði kröfuhafa og greiðendur, til að leita lausna
fyrir báða aðila. Það er góð tilfinning að standa í skilum og það er okkar hlutverk og
ánægja að stuðla að því.
Ef þitt fyrirtæki vantar aðstoð við að fylgja eftir reikningum og eiga góð samskipti við
greiðendur, þá bjóðum við uppá heildstæðar lausnir til að styðja við þinn rekstur og
að tryggja öruggara sjóðsstreymi ásamt góðu yfirliti um stöðu útistandandi krafna.
Hafðu samband við okkur og sérfræðingar okkar aðstoða þitt fyrirtæki við að setja
upp skilvirka ferla og að ná settum markmiðum.
Gjaldskil léttir á kolefnisfótspori viðskiptavina sinna. Við
notum rafrænar birtingar til þess að afhenda greiðendum
innheimtuerindi, þar sem því verður komið við. Þessi nálgun
kemur í stað þess að prenta, pakka og póstleggja allt að sex
bréf, vegna hverrar og einnar bankakröfu.
Gjaldskil getur birt greiðendum innheimtuerindi og áskoranir í
rauntíma, með rafrænni afhendingu. Greiðandinn fær þá þann
frest sem honum ber að fá. Það tapast enginn tími við prentun,
pökkun og póstburð. Innheimtumálun, viðskiptavina Gjaldskila,
er því sinnt hraðar en hingað til hefur þekkst.
Gjaldskil er eitt reynslumesta innheimtufélag landsins, sem
rekur sögu sína aftur til ársins 1984. Félagið kappkostar
að bjóða það allra besta og nýjasta í innheimtumálum,
hugbúnaði og þjónustu við viðskiptavini. Gjaldskil er í eigu
lögmannsstofanna Juris og LEX, Artica Eignarhaldsfélags og
framkvæmdastjóra félagsins.
QR flýtilausn á vefinn okkar
Skannaðu kóðann í símanum