Fréttablaðið - 16.11.2022, Side 15

Fréttablaðið - 16.11.2022, Side 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 16. nóvember 2022 Júlía Magnúsdóttir segir sitt hlutverk að finna út hvernig njóta megi sætinda og bakkelsis þannig að það sé gómsætt og hollt fyrir kroppinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Getum notið jólakrása án sektar Sektarlausir og sætir bitar eru sérsvið heilsumarkþjálfans og heilsukokksins Júlíu Magnús- dóttur. Hún segir Feel Iceland kollagen frábæra viðbót við hreint og heilnæmt fæði. 2 Karl hefur starfað lengi fyrir GR. gummih@frettabladid.is Karl Jóhannsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er sjálfboðaliði ársins 2022 hjá Golfsambandi Íslands en tilkynnt var um valið á formanna- fundi Golfsambands Íslands um nýliðna helgi. „Að starfa fyrir íþróttafélag sem sjálfboðaliði er alla jafna gefandi og skemmtilegt,“ sagði Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, þegar Karl var heiðraður á formannafundinum. Karl, sem er fyrrverandi lands- liðsmaður í handbolta og var um árabil einn besti handboltadómari landsins, sá tækifæri til að bæta og gera félagsstarf eldri kylfinga öflugra hjá Golfklúbbi Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og hefur haldið því áfram. Fram kemur á heimasíðu Golfsambands Íslands að eldri kylfingar hafa verið dug- legir að mæta og taka þátt í golf- mótum á sumrin á vegum Karls auk þess sem hann hefur skipulagt púttmót og verið með bingó eftir vetrarmánuðina. Gegnt ýmsum trúnaðarstörfum Karl hefur unnið ýmis önnur sjálfboðaliðastörf fyrir Golfklúbb Reykjavíkur allt frá árinu 1965. Hann var formaður golfklúbbsins 1983–1985 auk þess sem hann hefur gegnt hinum ýmsu trúnaðar- störfum í gegnum tíðina og verið viðriðinn uppbyggingu Golf- klúbbs Reykjavíkur til fjölda ára. n Karl sjálfboðaliði ársins hjá GSÍ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.