Fréttablaðið - 16.11.2022, Qupperneq 28
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf
að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðmundur Í. Ívarsson
bifreiðarstjóri og verktaki,
Seljavegi 8, Selfossi,
lést sunnudaginn 13. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Ingunn Hulda Guðmundsdóttir Pétur Pétursson
Harpa Guðmundsdóttir Guðmundur Þór Pétursson
Ólöf Eir Guðmundsdóttir
G. Alda Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
S. Ómar Hauksson
Hólavegi 41, Siglufirði,
lést á HSN Siglufirði,
mánudaginn 14. nóvember.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 26. nóvember kl. 14.00. Útförinni verður
jafnframt streymt.
Rósa Aðalheiður Magnúsdóttir
Haukur Ómarsson Solveig Ólöf Magnúsdóttir
Rósa Dögg Ómarsdóttir Róbert Jóhann Haraldsson
Jónas Logi Ómarsson Ester Torfadóttir
Eva Björk Ómarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Blásið verður til Nonnahátíðar
á Akureyri í dag í tilefni þess að
hundrað ár eru frá því að fyrsta
Nonnabókin kom út á íslensku.
arnartomas@frettabladid.is
Minjasafnið á Akureyri efnir í dag til
hátíðar í Nonnahúsi í tilefni þess að
hundrað ár eru liðin frá því að fyrsta
bók Nonna kom út á íslensku. Tíma-
mótin eru reyndar tvenn því að í dag
er líka afmælisdagur Jóns Sveinssonar,
Nonna.
„Við höfum verið að kalla þetta síð-
búið útgáfuhóf,“ segir Haraldur Þór
Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum
þessa hátíð en vonandi ekki það síð-
asta.“
Bækur Nonna njóta enn mikilla
vinsælda víða um heim, en fyrsta bók
hans var gefin út á þýsku 1913. Það var
ekki fyrr en 1922 sem hún kom fyrst út
á íslensku í þýðingu Freysteins Gunn-
arssonar. Haraldur Þór segir skemmti-
legt að afmælisdagur Nonna skuli vera
á degi íslenskrar tungu.
„Tvö af stóru skáldunum okkar í Eyja-
firðinum okkar eiga afmæli á þessum
degi, Jónas Hallgrímsson og Nonni,“
segir hann. „Það er skemmtilegt að það
skuli vera barnabókahöfundur fæddur
á degi íslenskrar tungu. Nonni á það
reyndar til að falla svolítið í skugga
Jónasar en vonandi ekki núna.“
Einlægar sögur
Í bókum Nonna segir frá ævintýrum
hans og bróður hans, Manna. Bækurnar
eru tólf talsins og hafa verið gefnar út í
milljónum eintaka á tugum tungumála.
En af hverju urðu þær svona vinsælar?
„Það er mjög góð spurning,“ svarar
Haraldur Þór. „Gunnar F. Friðriksson
veltir þessu einmitt fyrir sér í ævisögu
sinni um Nonna en það eru margir að
skrifa svipaðar drengjabókmenntir á
þessum tíma svo það er ekki ástæðan.
Kannski er það bara vegna þess að þetta
eru svo einlægar sögur. Hann er gríðar-
lega vinsæll í útlöndum og líklega sá
höfundur sem hefur verið gefinn út á
flestum tungumálum þangað til nýlega.“
Barnabörnin sækja Nonna heim
Á hverju ári heimsækja þúsundir manns
Nonnahús til að heimsækja heimili höf-
undarins. Haraldur Þór er ánægður með
hvernig vinsældir bókanna hafa erfst í
gegnum kynslóðirnar.
„Það er skemmtilegt að sjá að nú eru
barnabörnin farin að koma, af kom-
endur þeirra sem ólust upp á Nonna-
bókunum,“ segir hann. „Nonni hefur
þannig lifað í gegnum kynslóðirnar og
er auðvitað enn þá gefinn út í mörgum
löndum. Það er kannski Ísland sem hefur
verið erfiðast í útgáfu og þess vegna er
gott að þetta sé að koma út sem hljóð-
bók því þetta hefur verið
ófáanlegt hér á landi á
undanförnum árum.“
Nonnahátíðin hefst
í dag með viðhöfn milli
klukkan 15 og 17 og stend-
ur yfir fram á sunnudag.
Þar verður hægt að skoða
frumhandrit Nonna, þar á
meðal fyrstu bók hans sem
hann skrifaði á dönsku og
þýðingu Freysteins. Þá verða
einnig fjölbreyttir viðburðir
í boði á milli daga eins og
upplestrar, myndskreytingar-
smiðjur og tónleikar.
„Það er hugmyndin að gera
þetta að föstum lið og leyfa
þessu að vaxa,“ segir Haraldur
Þór. n
Síðbúið útgáfuhóf Nonna
Nonnabækurnar
eru til á fjölda
tungumála,
til dæmis
kínversku,
japönsku og
esperanto.
arnartomas@frettabladid.is
Þann 9. nóvember síðastliðinn var Vikt-
or Ólafsson fyrstur Íslendinga kosinn
heimsforseti alþjóðahreyfingarinnar
Junior Chamber International (JCI).
Hreyfingin samanstendur af 18 til 40
ára fólki sem hefur áhuga og metnað
til þess að ef la hæfileika sína og hafa
jákvæð áhrif.
„Þetta leggst bara gríðarlega vel í mig,
ég er mjög spenntur,“ segir Viktor sem
hefur formlega störf 1. janúar á næsta
ári. „Nú er bara að undirbúa á fullu eins
og maður hefur verið að gera undan-
farna mánuði.“
Viktor byrjaði 2010 í JCI í gegnum JCI
Reykjavík, aðildarfélag hreyfingarinnar
á Íslandi. Honum líkar augljóslega vel
þar og segist hafa verið á fullu síðan
þá, fyrst hér heima og síðan erlendis.
Heimsforseti er enginn smá starfstitill
og honum fylgja stór verkefni.
„Þetta felur í sér yfirumsjón með allri
hreyfingunni,“ segir hann. „Stóra hlut-
verk heimsforseta er í sjálfu sér að stýra
skútunni í eitt ár, ferðast um allan heim
og heimsækja sem flesta af okkar félög-
um, hvetja þá til dáða og miðla sýninni.“
Í JCI-hreyfingunni í dag eru yfir
150 þúsund félagsmenn ásamt eldri
félögum sem telja kannski 80 til
100 þúsund í viðbót og má ætla að
Viktor, sem aðalsendiherra hreyf-
ingarinnar, verði á ferðalagi í um
300 daga á árinu 2023. Hann er nú
í stuttu stoppi á Íslandi og af því
tilefni munu JCI á Íslandi bjóða til
móttöku honum til heiðurs í KR-
heimilinu Frostaskjóli í dag. n
Íslendingur heimsforseti JCI
Viktor byrjaði í
JCI árið 2010.
Nonni skrifaði bækur sínar á þýsku. MYNDIR/AÐSENDAR
Á safninu er hægt að
skoða frumhandrit
Nonna.
Nonni á það reyndar til
að falla svolítið í skugga
Jónasar en vonandi ekki
núna.
1532 Francisco Pizarro og
menn hans taka Ata-
hualpa Inkakonung
til fanga.
1621 Páfi gefur út til-
skipun um að fyrsti
janúar skuli verða
fyrsti dagur ársins.
1632 Gústaf annar Adolf
Svíakonungur
fellur í orrustunni við
Lützen.
1907 Stytta Einars Jóns-
sonar af Jónasi
Hallgrímssyni er
afhjúpuð við Amt-
mannsstíg.
1917 Reykjavíkurhöfn
er formlega tekin í
notkun.
1930 Austurbæjarskóli tekur til starfa.
1930 Lúðrasveitin Svanur er stofnuð.
1945 Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, er stofnuð.
1946 Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar eru jarð-
settar í þjóðargrafreitnum.
1985 Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands fædd.
1996 Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í fyrsta
sinn.
2000 Bill Clinton verður fyrstur Bandaríkjaforseta til að
heimsækja Víetnam frá lokum Víetnamstríðsins.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 16. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR