Fréttablaðið - 16.11.2022, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Mörgum, sérstaklega þeim sem
minnst af undirbúningi jólanna
vita, þykir alveg ómögulegt að
hann sé að einhverju marki haf-
inn nú í nóvember. Í þeirra huga
kaupa jólagjafirnar sig sjálfar og
allt annað gerist fyrir eitthvert
jólakraftaverk. Mér er fullkunn-
ugt um hvað felst í þessu og þó
ég baki ekki 17 sortir (borða þær
bara) þá hef ég staðið mig að því
að tapa mér í jólahreingerningu.
Mér fannst til dæmis eðlilegt að
þrífa skrúfuboxin í geymslunni
um miðja nótt eina aðventuna.
Mér til varnar hafði ég einmitt
lesið í blaði þá snilldaraðferð
að taka hausinn af ryksugunni,
smeygja nælonsokk á rörið
og voilá! Þið þakkið mér bara
seinna.
Ég hef aðeins tónað þetta
niður síðustu ár en mun ekki láta
glepjast algerlega: lækka bara
ljósin og kveikja á kertum – enda
skreytir maður ekki yfir skít.
Flest þau sem standa þriðju
vaktina hafa fjölmargar aðrar
skuldbindingar og þykir
heppilegt að undirbúningur
dreifist nokkuð yfir á nóvember-
mánuð. Sá (ok, sú) sem hitann og
þungann ber af öllu saman hefur
þá að minnsta kosti tímann fyrir
sér.
Annað alveg ókeypis ráð: Það
kann að virðast dálítið róman-
tískt að pakka inn jólagjöfum á
Þorláksmessu, hlusta á Bubba,
drekka rauðvín og borða
(margar) Sörur á meðan maður
pakkar inn gjöfunum. Þetta er
misskilningur. Ekki þetta með
rauðvínið eða Sörurnar. Ekki
heldur Bubba. Það er þetta með
innpökkunina. Pakkið inn jafn-
óðum og þið fáið góssið í hús.
Þið munið þakka mér þetta líka
og fá ykkur eina auka-Söru upp
á það. n
Jóla(ó)ráð
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Dyngja dúnúlpan er einangruð með
endurnýttum dún og ytra byrði úlpunnar er
úr endurunnu nylon efni.
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur @66north
Dyngja
Aðventutónleikar
Sinfóníunnar
01.12 19:30
MIÐASALA Á SINFONIA.IS