Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Blaðsíða 7
1.
INNGANGUR
1.1. ALMENNT
Notkun tóbaks og vímuefna er verulegt vandamál hér á landi, eins
og í nágrannalöndum okkar. Þessi efni hafa ekki eingöngu skaðleg
áhrif á heilsufar notenda, heldur eru þau einnig samverkandi orsök
ýmissa félagslegra vandamála. Afleiðingar þessarar neyslu kosta
þjóöfélagið gífurlega fjármuni á sviói félags-, heilbrigðis- og
tryggingamála, menntamála, löggæslu- og dómsmála, svo að ekki sé
minnst á fjarvistir frá vinnu, auk óhamingju einstaklinga og fjöl-
skyldna, sem ekki verður metin til fjár.
Þrátt fyrir það varnarstarf, sem nú þegar fer fram, bendir fátt til
þess að varanlega dragi úr notkun þessara efna.Þarf áreiðanlega enn
viðtækari aðgeróir, með nánu samstarfi fjölmargra aðila, ef betri
árangur á aó nást.
1.2. ÁFENGI
Síðustu áratugina hefur skráó heildarsaia áfengis hér á landi
aukist jafnt og þétt. Samfara aukinni sölu áfengis hafa áfengis-
neysluvenjur breyst, einkum meðal unglinga. Samkvæmt niðurstööum
kannana á áfengisneyslu unglinga neyta tiltölulega fleiri þeirra
áfengis en áóur var, einnig oftar og meira hverju sinni. Aðrar
niöurstööur eru þær að áfengisneytendum meðal stúlkna hefur fjölgaö
og virðist nú vera lítill munur á áfengisneyslu pilta og stúlkna,
og að unglingarnir eru nú yngri en áður þegar þeir neyta áfengis í
fyrsta skipti. Þá hafa áfengisvenjur fullorðins fólks einnig
breyst, einkum meöal kvenna, sem nú drekka oftar og meira en áður.
Norrænar kannanir sýna svipaða þróun. Margt bendir þó til að
minna sé um stórdrykkjumenn en áður var. Síðustu árin hefur
oröið breyting á viðhorfi manna til áfengis sem vandamáls. Nú er
meira rætt um vandann og minna ber á fordómum gagnvart þeim sem
þurfa meðferðar við. Líklegt er aó starf SÁÁ hafi haft mikil áhrif
á afstöðu almennings til þessa þjóöfélagsvandamáls.
Áhrif áfengisnotkunar á heilsufar eru margvísleg. Of mikil áfengis-
neysla er talin vera veigamikil orsök ýmissa sjúkdóma, svo sem
magabólgu, magasárs, skorpulifrar og heilarýrnunar. Talió er aó
10-20% innlagna á almenn sjúkrahús eigi rót sína að rekja til
áfengisnotkunar. Vistrými fyrir áfengissjúka hefur aukist,
og taliö er aó 4-5% af heildarfjölda innlagóra sjúklinga dvelji á
slíkum stofnunum. Þá má tengja mörg sjálfsmorð, slys og líkamsmeiö-
ingar áfengisneyslu. Á íslandi er rekin ríkiseinkasala á áfengi, og
er það athyglisvert aö útsöluverð á áfengi hefur a.m.k. siðastliðna
tvo áratugi fylgt kaupmætti.
Ekki hefur veriö lagt mat á þaó hérlendis hvort fjárhagslegur
ávinningur er af sölu áfengis, borið saman vió það tjón er hlýst
af áfengisneyslu. Ýmsar erlendar kannanir benda til þess að gróði
þjóöfélagsins sé lítill eða enginn, ef tekið er tillit til út-
gjalda vegna heilbrigöisþjónustu við áfengissjúka, lögbrota og
fjarvista frá vinnu, en á móti reiknaður fjárhagslegur ágóöi hins
opinbera af sölu áfengis.
7