Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Blaðsíða 12
sem stuðst er við hér að framan, en þær ná að sjálfsögðu ekki til
þess magns sem íslendingar neyta erlendis, smyglaðs áfengis og
heimabruggs. 1 þeim felst aftur á móti það magn áfengis sem út-
lendingar drekka á íslandi. Bjarni Þjóðleifsson læknir áætlaöi að
þessi óskráða neysla væri um 1,25 lítrar af hreinum vinanda á íbúa
árið 1975 (heimabrugg 0,8 litar, tollfrjáls innflutningur 0,15
litrar og löglegur bjór 0,3 litrar) (4). Á myndum 2 og 3 hefur
áætluöu magni heimabruggs árið 1975 veriö bætt við sölu hreins
vinanda á ibúa. Hér er gert ráð fyrir aö þetta hafi haldist óbreytt
en ekkert er um þaó vitaó.
2.1.2. Neysluvenjur fulloröinna
Tómas Helgason, Jóhannes Bergsveinsson og Gylfi Ásmundsson hafa
kannaó breytingar á neysluvenjum íslendinga, aö þvi er varðar
áfengi (16). Könnunin var gerö árin 1972-74 og endurtekin 1979.
HÚn náði til 3016 manns, 20-49 ára. Alls svöruöu 2417 árin 1972-74,
eóa um 80%, og kom þá i ljós að færri konur neyttu áfengis
Mynd 2: Sala áfengis eftir helstu tegundum síðustu 'tvo áratugi.
12