Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Blaðsíða 21
Tafla 13 : Tiðni innlagna á geðsjúkrahús, vegna áfengissýki,
árin 1967-68, eftir búsetu, miðað við 100.000 (30).
Þéttbýli ........ 116
Kauptún........ 48
Sveitir .......... . 19
Tafla 14: Tiðni innlagna á geðsjúkrahús, vegna áfengissýki,
árin 1967-68, eftir hjúskaparstétt,
mióað vió 100.000 (30).
Karlar Konur
Ekki i hjónabandi ..... 139 33
í hjónabandi............. 183 44
Fráskildir ............... 472 115
Alls 180 45
2.3.2. Tiðni innlagna vegna áfengissýki
Eftir þvi sem best er vitað eru hlutfallslega færri íslendingar
haldnir alvarlegum áfengissjúkdómum en gerist meðal næstu nágranna-
þjóða okkar. Þótt alvarlegir áfengissjúkdómar séu hér hlutfallslega
fátióari, þá er hér langmestur viðbúnaður til þess að annast
áfengissjúklinga, bæði hvað varðar fjölda vistrýma og tiðni inn-
lagna. Tafla 11 sýnir skiptingu rúma á meðferðarstofnunum fyrir
áfengissjúka. Frá 1977 til 1981 hefur rúmum fjölgað um 90.
Tiðni innlagna árin 1979-81 á hinar ýmsu sjúkra- og meðferðar-
stofnanir, vegna drykkjusýki, var eins og sýnt er i töflu 12.
Sérstök athygli skal vakin á þvi að tölur þessar gefa ekki til
kynna fjölda þeirra einstaklinga sem leitað hafa til stofnananna,
heldur einungis fjölda innlagna þessi ár. Mikið er um að sömu
einstaklingarnir leiti itrekað hjálpar, ýmist hjá einni stofnun
eða fleirum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það, um hve marga
einstaklinga er að ræða, nema fyrir árið 1977, en þá voru 1082
lagðir inn, 203 konur og 879 karlar, á opinberar stofnanir (24).
Um 1200 einstaklingar voru lagðir inn á landinu i heild, og eru þá
bæði taldar opinberar stofnanir og einkastofnanir.
Á vegum framkvæmdanefndar Heilbrigðismálaráðs Reykjavikurlæknis-
héraðs var gert sjúklingatal á öllum sjúkrastofnunum i læknis-
héraðinu i lok marsmánaðar 1981 (49). Einnig var safnað upplýsingum
um tilefni innlagna, aldur, aðalsjúkdóm, lengd dvalar o. fl. Samtals
voru skráöir 1883 sjúklingar á sjúkrastofnunum þennan dag, 1763
legusjúklingar og 120 dagvistunarsjúklingar. Á geðdeildum dvöldust
368 sjúklingar og af þeim voru 72 eða 19,6% til meðferðar vegna
drykkjusýki og lyfjamisnotkunar. Dagvistunarsjúklingar á geðdeildum
voru 67, þar af 5 (7,5%) vegna drykkjusýki og lyfjamisnotkunar.
Ekki hefur verið geró ýtarleg könnun á þjóöfélagsstöðu þeirra sem
lagðir eru inn vegna áfengissýki. Margt bendir þó til þess að minni
rnunur sé hér á áfengissýki eftir stéttun en i nágrannalöndunum.
Hins vegar er ljóst að margfalt fleiri úr þéttbýli en dreifbýli
eru vistaðir á geðsjúkrahúsum vegna áfengissýki, eins og sjá
má á töflu 13. Ennfremur er ljóst, aó tiðni innlagna er hæst meðal
21