Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Blaðsíða 44
4.7.
LÍFRÆN LEYSIEFNI - SNIFF
4.7.1. Notagildi (42)
Lifræn leysiefni eru rokgjarnir vökvar og lofttegundir sem hafa
margþætt notagildi. Þau eru notuð til þess að þvo fitu af hlutum og
til hreingerninga, i málningu og lökk og til að halda limi fljót-
andi. Einnig eru þessi efni notuð i plastiðnaði, gúmmiiðnaði og
sem svæfingarlyf.
Ljóst er þvi,að mikið af þessum efnum er notað i iðnaði, og sem
dæmi má nefna að samkvæmt verslunarskýrslum fyrir árið 1979 voru
flutt til islands yfir 3000 tonn af ýmsum leysiefnum. Þá eru aðeins
talin hrein leysiefni en ekki það sem innflutt er i málningu, limi,
plastefnum og ryðvarnarefnum. Okkar iðnvædda samfélag er meira og
minna háð notkun þessara efna og þvi geta margar starfsstéttir
orðið fyrir mengun leysiefna. Hér er hægt að nefna málara, ekki
bara húsamálara, heldur ennfremur þá sem mála skip og bila oft með
háþrýstum sprautuúðurum. Dúklagningarmenn geta orðið fyrir mengun
leysiefna úr limum og plastefnum sem þeir nota, ennfremur járn-
iðnaðarmenn, fólk á rannsóknastofum og ekki sist þeir sem vinna við
plastiðnað hvers konar svo sem smiði plastbáta og annarra hluta úr
plasti. Þar sem lifræn leysiefni eru mikið notuð i málningu er
starfsfólk málningarverksmiðja i hættu af mengun leysiefna. Laus-
lega áætlað eftir mannaflatölum Framkvæmdastofnunar rikisins árið
1979 má ætla að um það bil 4000 manns séu i náinni snertingu við
þessi efni. Miklu fleiri nota þó lifræn leysiefni af og til við
störf sin.
Sökum mikils notagildis lifrænna leysiefna og viðtækrar útbreiðslu
þeirra i iðnaði og á rannsóknarstofum munum vió um langan aldur
vera neydd til að nota og umgangast þessi efni bæði á vinnustöðum
og heimahúsum. Nauðsynlegt er þvi að fólk almennt kynnist þeim
hættum sem samfara eru notkun efnanna og læri að umgangast þau af
fullri gát, sem er nauðsynlegt til að forðast heilsutjón. Upplýs-
ingar og fræðsla um skaðsemi þessara efna eru þvi nauðsynleg öll-
um og ekki sist þeim hópum þar sem borió hefur á misnotkun.
4.7.2. Ahrif (42)
Leysiefni eiga það sammerkt að vera lifræn efni og eru greind i
ótal flokka eftir samsetningu og eiginleikum. Mörg þessara efna
eru unnin úr jarðoliu og sum þeirra eru blöndur ýmissa virkra efna.
Lifræn leysiefni eru þess eðlis að þau leysast auðveldlega i fitu
og þess vegna eru þau gjarnan notuð i iðnaði. Efnin eru rokgjörn
og gufa gjarnan upp við lágt hitastig en uppgufun eykst við hærra
hitastig. Þaö er gufa efnanna i andrúmsloftinu sem berast niður i
lungun með innöndunarloftinu.
Vegna þess hve fituleysanleg efnin eru eiga þau greiða inngöngu i
blóðrásina, gegnum lungnablöðrurnar, og dreifast á þann veg um
allan likamann. Þau safnast i fiturika vefi likamans, svo sem lik-
amsfitu og taugavef sem inniheldur mikið af fituefnum. Við tiða
húðsnertingu lifrænna leysiefna þvost burt úr húðinni viss fitu-
efni sem henni eru nauðsynleg. Sum leysiefni geta frásogast beint
i gegnum húðina inn i likamann. Sjaldgæft er að þessi efni komist
inn i likamann um meltingarveg þar eð neysla þeirra um munn er
ákaflega fátið, enda bráðdrepandi.
- 44 -