Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Page 8
öllum ætti aö vera ljóst, af lestri þessarar skýrslu um vímuefna-
notkun íslendinga, aö áfengi er enn sem áöur mest notaða vímu-
efniö. Hafa ber í huga, þegar áfengismál eru til umræðu, aö
flestir eiga mjög erfitt með aö taka afstööu til áfengis á hlut-
lægan og ópersónulegan hátt. Telja sumir aó núverandi ástand í
áfengismálum sé viðunandi, aórir aö lækka eigi aldursmörk viö kaup
á áfengi og heimila eigi sölu á sterkum bjór, og enn aðrir aó
fækka eigi útsölustöðum áfengis og beita öörum tiltækum ráóum til
aö draga sem mest úr sölunni. Áfengisvandamálið verður aö skoöa
frá mörgum hliðum, en meginvandi stjórnvalda er að móta stefnu í
áfengismálum sem hægt er að ná samstöðu um. Takmarkið hlýtur að
vera að draga verulega úr heildarneyslu áfengis.
1.3. TÓBAK
Taliö er aö 20-30% allra dauðsfalla af völdum krabbameina stafi af
tóbaksreykingum, ýmsir lungnasjúkdómar og hluti hjarta- og æða-
sjúkdóma. Samkvæmt athugunum Landlæknisembættisins, og meó hlið-
sjón af erlendum rannsóknum, má áætla að 200-300 íslendingar deyi
árlega af völdum reykinga. Þetta er mikil fórn fyrir
ósiö sem ætti að vera hægt aó útrýma.
Af einstökum reykingasjúkdómum má nefna lungnakrabbamein. Tíðni
þess hefur aukist mikió hér siðustu árin. Árið 1980 greindust 73
ný tilfelli af þessu krabbameini, 42 hjá körlum og 31 hjá konum.
Meðferðin er því miður ekki sérlega árangursrik og nær einungis
tíundi hver sjúklingur að lifa i fimm ár eftir að sjúkdómurinn
er greindur. Þá má geta þess aö reykingamenn leita meira til
lækna og sjúkrahúsa og neyta meiri lyfja en þeir sem ekki reykja.
Þaö er þvi til mikils að vinna að berjast gegn reykingum.
íslendingar voru meóal þeirra þjóða heims sem fyrstar lögfestu
bann viö tóbaksauglýsingum, takmarkaó bann 1971 en algjört 1977.
Árin 1970 og 1971 var skylt að merkja sigarettupakka meö varnaðar-
oröum um hættu á heilsutjóni af völdum reykinga, en þvi var hætt
og fjármagni veitt i staðinn til auglýsinga og áróöurs. Opinberir
aöilar, einkum Reykingavarnanefnd (áöur Samstarfsnefnd um reyk-
ingavarnir), svo og Krabbameinsfélagió hafa gengist fyrir fræðslu
um hættur af tóbaksreykingum. Árangur þessa starfs birtist meðal
annars i verulega minni reykingum grunnskólanemenda, og einnig
er samdráttur i reykingum þeirra sem mætt hafa i rannsókn hjá
Hjartavernd. Þá má nefna að tóbakssala á hvern fullorðinn ibúa var
minni árin 1976-80 heldur en næstu fimm ár þar áóur. Loks má hafa
i huga að i þeim sigarettum sem nú eru seldar hér er mun minna af
tjöru og nikótini heldur en áöur var. Þetta virðist óneitanlega
sýna aó stefni i rétta átt. En betur má ef duga skal. Fylgni milli
tóbakssölu og kaupmáttar ráðstöfunartekna bendir til aö salan
myndi minnka ef veróið yrði hækkað verulega umfram kaupmátt.
1.4. KANNABIS
Notkun kannabisefna hefur aukist hér á landi, og benda niðurstöður
kannana til þess aó hún sé nú svipuð hér og i Noregi. Könnun sem
gerð var meðal 15 og 17 ára skólaunglinga i Reykjavik áriö 1980
sýndi þó að einungis 2-3% þessara unglinga nota hass reglulega
(vikulega). Kannabisnotkun er ólögleg og þvi er erfitt aó meta
hana út frá sölutölum, likt og áfengi, tóbak og lyf. Neyslan hefur
8