Heilbrigðisskýrslur - 08.12.1982, Síða 46
hann kemst i betra og ómengað andrúmsloft. Sniffarar komast á lagið
með að halda niðri i sér andanum i stutta stund meðan á vimunni
stendur og þá liður gjarnan yfir þá, svo kröftug og svæfandi geta
þessi efni verið. Sofni menn i andrúmslofti menguðu lifrænum
leysiefnum er hætta á ferðum, þvi svefninn getur orðið dýpri en
viðkomandi hefði ætlað sér. Meginreglan er þó sú að' bráð eitrun
varir stutt og einstaka tilvik skilja ekki eftir varanlegan skaóa.
Þeir sem verða forfallnir i að sniffa, eða starfsstéttir sem árum
saman verða fyrir mikilli mengun lifrænna leysiefna, geta orðið
fyrir siðkominni (króraiskri) eiturverkun á miðtaugakerfið. Einkenni
hennar er þreyta, slen og minnisleysi, sérstaklega á nýorðna at-
burði. Höfuðverkur er áberandi einkenni og eins eiga viðkomandi
oft bágt með að einbeta sér og hugsun verður þokukennd. Oft er
mikil viðkvæmni gagnvart minnsta áreiti. Sé eitrunin komin á hærra
stig ber á sljóleika og almennu framtaksleysi. Talið er að áfengis-
þol minnki og ennfremur kyngeta. Þeir starfsmenn sem verða fyrir
áhrifum langvinnrar eitrunar hafa þó unnið áratugum saman með lif-
ræn leysiefni.
Nokkur leysiefni eru sérstaklega þekkt fyrir að valda tjóni á út-
taugum. Þetta lýsir sér i dofa og tilfinningaleysi sem byrjar i
fingurgómum en getur dreifst upp eftir útlimum og jafnvel lamað
hreyfitaugar. Dæmi eru til að sniffarar lamist algjörlega á útlimxim
vegna misnotkunar leysiefna. Stundum hafa þessi eitrunareinkenni
horfið að mestu, hafi misnotandinn komist undir læknishendur
timanlega.
Lifræn leysiefni geta unnið tjón á hjarta- og æðakerfi. Starfs-
hópar sem orðið hafa fyrir mengun brennisteinskolefnis, hafa fengið
miklar og útbreiddar æðakalkanir. Auk þess valda sum lifræn leysi-
efni óstöðugleika i gangráði hjartans og i hjartavöðvanum. Við
kröftuga mengun leysiefna er þvi mikil hætta á hjartsláttartrufl-
unum, sem geta verið hættulegar og jafnvel haft dauða i för með
sér.
Sum lifræn leysiefni eru þekkt að þvi að valda skemmdum á lifr-
inni. Lifrin bólgnar upp og verður að hluta óstarfhæf. Haldi eit1-
runin áfram getur þetta leitt til gulu og skorpulifur. Nokkur lif-
ræn leysiefni geta valdið blóðleysi með þvi að verka hemjandi á
blóðmerg og á þann veg dregið úr framleiðslu á rauðum blóðkornum.
Nokkur þessara efna eru þekkt af þvi að geta valdið krabbameini og
enn önnur eru sterklega grunuð um að vera krabbameinsvaldandi. 1
þessu sambandi er rétt að nefna benzen, sem er hringlaga kolvetnis-
sameind. Þetta leysiefni er talið geta valdið blóðkrabbameini.
Notkun þess er þvi viða bönnuð og reynt eftir megni að koma i veg
fyrir að óhreinindi af þvi séu til staðar i öðrum skyldum leysi-
efnum.
Ýmis leysiefni liggja undir grun um að valda fósturskemmdum, litn-
ingatruflunum og nýrnaskemmdum. Frumrannsóknir benda til að leysi-
efni geti valdið augnsjúkdómum (starblindu).
4.7.3. Sniff islenskra unglinga
öðru hvoru virðast sniff-faraldrar skjóta upp kollinum meðal ungl-
inga. Ekki liggur fyrir nákvæm vitneskja um hversu útbreitt þetta
46