Borgfirðingabók - 01.12.1981, Page 82
80
Jón Erlingsson frá Kirkjubóli í Hvítársíðu og kona hans Þórunn
Hannesdóttir ættuð af Akranesi.
Þegar Halla fæddist voru foreldrar hennar kaupafólk á
Norður-Reykjum. 1896 fluttu þau að Kollslæk í sömu sveit og
bjuggu þar allan sinn búskap. Upp úr tvítugu fór Halla á Hvít-
árbakkaskóla og nam þar í tvö ár. Þar kynntist hún manni sínum,
Andrési Vigfússyni, sem ættaður var úr Biskupstungum. Þau
tóku við búi á Kollslæk 1921, en höfðu áður búið á Uppsölum í
tvö ár. Á Uppsölum fæddist þeim báðar dætur þeirra, Þórunn,
kona Magnúsar bónda Kolbeinssonar í Stóra-Ási og Valgerður,
sem dó ársgömul.
Á Kollslæk bjuggu þau til ársins 1956, er þau fóru í Stóra-Ás til
Þórunnar og Magnúsar. Halla og Andrés ólu upp tvo sonu
Þorbjargar systur Andrésar, þá Eyjólf og Baldur Sigurðssyni.
Einn bróður átti Halla, Stefán, er lengst af bjó í Gröf í Lund-
arreykjadal en síðast á Akranesi.
Hinn 5. janúar 1980 var gerð frá Leirárkirkju útför Ólafs
Hallvarðssonar bónda á Geldingaá í Leirársveit. Ólafur var
fæddur á Geldingaá 16. júní 1916 og andaðist á Sjúkrahúsi
Akraness 25. desember 1979. Foreldar hans voru Hallvarður
Ólafsson bóndi og oddviti á Geldingaá og kona hans Anna
Kristín Jóhannsdóttir frá Efri-Hömrum í Holtum í Rangár-
vallasýslu. Ólafur var bóndi á Geldingaá frá 1950-1978.
Ólafur var mjög góður hestamaður og átti stundum úrvals-
gæðinga. Hann var grandvar maður, trúr og ábyggilegur.
Ólafur var ókvæntur og barnlaus.
Hinn 8. júní 1980 andaðist Guðjón Guðmundsson fv. bóndi í
Steinsholti í Leirársveit og var útför hans gerð frá Leirárkirkju
14. sama mánaðar. Guðjón var fæddur í Villingadal á Ingjalds-
sandi 2. júlí 1898. Foreldar hans voru Guðmundur Sigmunds-
son bóndi þar, og kona hans Jakobína Jónsdóttir, er bæði voru
vestfirskrar ættar.