Morgunblaðið - 19.08.2022, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2022
Boðið upp í dans Sumargrill var haldið á Hrafnistu á Sléttuvegi í gær. Við það tilefni kom Hörður G. Ólafsfson og skemmti íbúum og gestum og nokkur dansspor voru stigin.
Árni Sæberg
Ég fjallaði hinn 7.
ágúst sl. um málefni
innanlandsflugvallar á
Facebook eftir mjög
góðan þátt „Í vikulok-
in“ á Rás 1. Eftir já-
kvæð viðbrögð og
hvatningu tók ég sam-
an eftirfarandi grein
fyrir lesendur Morg-
unblaðsins.
Aðrir valkostir en
Vatnsmýrin ekki álitlegir
Komið hefur greinilega fram í
fjölmiðlum að eldgosin á Reykja-
nesi hafa almennt breytt afstöðu
sérfræðinga jafnt sem almennings
til Hvassahrauns sem mögulegs
stæðis fyrir nýjan flugvöll. Aðrir
staðir sem gætu komið til greina,
s.s. Löngusker, Hólmsheiði eða
Bessastaðanes, ganga illa upp eða
alls ekki; Löngusker vegna mikils
kostnaðar við umfangsmiklar upp-
fyllingar og landtengingar. Þá geta
slíkar uppfyllingar sigið og/eða
yfirborð sjávar hækkað á næstu
áratugum. Garðabær og umhverfis-
verndarsjónarmið útiloka Bessa-
staðanes og Hólmsheiði liggur að
flestra mati of hátt og of nærri
fjöllum fyrir hentugan flugvallar-
kost.
Meirihluti borgarstjórnar
heldur leitinni áfram
Barátta sumra borgarfulltrúa
fyrir lokun Reykjavíkurflugvallar
heldur samt áfram. Á það m.a. við
um Einar Þorsteinsson, oddvita
framsóknarmanna og formann
borgarráðs. Hann vill samkvæmt
viðtali á vef Túrista (5. ágúst sl.)
eftir sem áður finna Reykjavíkur-
flugvelli annað stæði. Hjálmar
Sveinsson borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar segir í pistli í Frétta-
blaðinu 17. ágúst alla oddvita flokk-
anna nema Miðflokksins vilja
frekar byggð en flugvöll í Vatns-
mýrinni, „en með fyr-
irvörum þó“, eins og
hann segir. Það er að
sjálfsögðu aðalatriðið.
Fyrirvari margra var
að það yrði að vera bú-
ið að finna annan jafn
góðan eða betri kost
og koma honum í
rekstur áður en byggð
getur hafist á
flugvallarsvæðinu.
Einar hefur þegar
orðið fyrir einhverjum
áhrifum af Degi B.
Eggertssyni og núverandi meiri-
hluta enda á hann ekki marga kosti
í stöðunni. Fyrir kosningar sagðist
Framsóknarflokkurinn vilja
tryggja sem best rekstrarskilyrði
flugvallarins í samræmi við þá
stefnu hans að þrengja ekki frekar
að honum. Sigurður Ingi Jóhanns-
son innviðaráðherra og formaður
Framsóknarflokksins leggst gegn
uppbyggingu nýs hverfis í Skerja-
firði. Hann segir borgina ekki fá að
byggja upp á flugvallarlandi í
„Nýja Skerjafirði“ fyrr en búið
verði að finna nýjan stað undir
Reykjavíkurflugvöll.
Er ekki nóg komið
af skýrslum?
Ef litið er til skýrslu vinnuhóps
sem hét „Flugvallarkostir á suð-
vesturhluta landsins“ frá 2019, eða
skýrslu Rögnunefndarinnar svo-
kölluðu frá 2015, er ekkert sem
bendir til þess að Reykjavíkurflug-
völlur fari næstu 15-20 árin og afar
vafasamt að Hvassahraun sé álit-
legur kostur og síðustu atburðir
hafa þar vissulega áhrif.
Árið 2013 kom út stórmerkt rit,
„Náttúruvá á Íslandi – eldgos og
jarðskjálftar“, 785 blaðsíðna fræði-
rit. Að ritun verksins komu 53
fremstu jarðvísindamenn Íslands.
Á bls. 379-401 er sérstaklega fjallað
um Reykjanesskaga, og þar birt
meðfylgjandi mynd, sem sýnir
nokkur skilgreind eldstöðvakerfi
skagans. Bæði Keflavíkurflugvöllur
og Reykjavíkurflugvöllur eru utan
og norðan við þessi kerfi. Umrædd-
ur flugvöllur í Hvassahrauni er
hins vegar innan eldstöðvakerfis,
sem nefnist „Eldvörp – Svarts-
engi“. Næsta kerfi fyrir austan það
er „Fagradalsfjall“. Sjá teikningu
með þessari grein.
Gæti Reykjavíkurflugvöllur
orðið enn mikilvægari?
Styrkur Reykjavíkurflugvallar
er mikill, bæði fyrir höfuðborgina
og landsbyggðina. Það er að mörgu
leyti sjálfsögð krafa að höfuðborgin
tryggi viðunandi flugsamgöngur út
um land. Núverandi staðsetning
gerir flugvellinum kleift að þjóna
landsbyggðarfólki sem þarf að
sækja margvíslega heilbrigðisþjón-
ustu, stjórnsýslu, æðri menntun og
nýsköpunarverkefni og almennt
samskipti við vini og ættingja.
Sama með Reykvíkinga og ferða-
menn sem fara út á land og vilja
nýta flugsamgöngur.
Með hliðsjón af fyrirliggjandi
skýrslum og úttektum, fjárhags-
stöðu þjóðarinnar og eldgosinu á
Reykjanesi er ljóst að Reykjavíkur-
flugvöllur verður þar sem hann er
a.m.k. næstu 20 árin og eflaust tals-
vert lengur, nema grundvöllur inn-
anlandsflugs leggist hreinlega af.
Rafmagnsflugvélar gætu styrkt
samkeppnisstöðu flugvallarins.
Í frétt á Vísi árið 2013 sagði í um-
fjöllun um flugvallarmálið þegar
ákveðið var að leggja niður minnstu
norðaustur-suðvestur-brautina:
„Samkomulag innanríkisráðherra
[Ögmundar Jónassonar] og borg-
arstjóra [Jóns Gnarrs með Dag B
sem formann borgarráðs] „… ekki
er gert ráð fyrir að hnikað verði frá
áformum borgarstjórnar Reykja-
víkur að norður-suður-brautinni
verði lokað árið 2016 og Reykjavík-
urflugvöllur verði rekinn með einni
flugbraut, austur-vestur-brautinni,
til árs 2024 þegar honum verður
endanlega lokað.“ Að sjálfsögðu
voru þetta óraunhæfar og vanhugs-
aðar yfirlýsingar eins og margt
sem verið er að lofa í dag.
Niðurstaðan er augljós
Mikil og kostnaðarsöm verkefni
eru fram undan, s.s. Sundabraut,
bygging 35.000 íbúða á næstu 10
árum, miklar úrbætur í samgöngu-
málum um allt land, ekki síst í
Reykjavík, og dýr jarðgöng bíða í
röðum. Ljúka þarf byggingu nýs
Landspítala og endurbyggingu
gamalla bygginga þar og mörg
verkefni bíða á sviði velferðar- og
menntamála. Svo þarf að fjárfesta í
ýmsum innviðum á sviði tækniþró-
unar og nýrra atvinnugreina. Á
sama tíma geisar hér verðbólga og
verja þarf sem best lífskjör al-
mennings. Af nægu er að taka.
Þrátt fyrir loforð hefur verið
þrengt að flugvellinum. Hæstu tré í
Öskjuhlíð hafa ekki verið höggvin,
eins og lofað var, og tilraun er nú
gerð til að byggja í Skerjafirði.
Hvers vegna er ekki lögð áhersla á
að lengja núverandi austur-vestur-
braut yfir Suðurgötu og setja hana
og göngu- og hjólaleið í stokk undir
flugbrautina? Það myndi stórauka
notagildi þessarar brautar og
minnka notkun norður-suður-
brautar sem truflar mest vegna
flugs yfir miðborgina.
Reykjavíkurflugvöllur verður
þar sem hann er a.m.k. næstu 20
árin eða lengur, en ekkert er að því
að hafa væntingar til þess að ein-
hvern tíma í framtíðinni verði þar
íbúðabyggð. Þangað til er brýnt að
viðhaldi hans sé sinnt og nauðsyn-
legri uppbyggingu, svo að hann geti
gegnt mikilvægu hlutverki sínu
sem innanlandsflugvöllur og al-
þjóðlegur varaflugvöllur ásamt
bættri aðstöðu á Akureyri og sér-
staklega Egilsstöðum.
Eftir Þorkel
Sigurlaugsson
» Styrkur Reykja-
víkurflugvallar er
mikill fyrir höfuðborg-
ina og landsbyggðina og
enginn góður kostur
kemur í hans stað í ná-
inni framtíð
Þorkell Sigurlaugsson
Höfundur er varaborgarfulltrúi í
Reykjavík og formaður velferðar-
nefndar Sjálfstæðisflokksins.
thorkellsig@gmail.com
Innanlandsflugvöllur í Vatnsmýrinni er ekki á förum
Eldstöðvakerfi
Jarðskjálftakerfi sem liggur eftir
Reykjanesskaga og markar flekaskilin
Jarðhitasvæði
Sprungureinar Hengils til norðausturs
og Reykjaness til suðvesturs
Kort: Náttúruvá á Íslandi