Morgunblaðið - 19.08.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2022
Bækur
Bækur til sölu
Saga Garðabæjar 1 til 4 í plasti.
Kóranin, Á Jakobsvegi. Kristni á
Íslandi 1 til 4, Dvöl 1 til 10 1901.
Sagnagestur 1 til 3 Þ.T. Handbók
vélstjóra, Undir hamrastáli.
Kvennablaðið 1 til 4 ár Br. Bj.
Strandamenn. Vaka 1 til 3.
Ferðabóka Eggerts og Bjarna,
Gríma 1-5, Norsk íslensk
orðabók, Hetjusaga, Winnipeg,
1921. Gamlar glæður.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Málarar
MÁLARAR
Tökum að okkur alla
almenna málningarvinnu.
Unnið af fagmönnum með
áratuga reynslu,
sanngjarnir í verði.
Upplýsingar í síma
782 4540 og
loggildurmalari@gmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Rað- og smáauglýsingar
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi, s. 458 2000
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Uppboð verður haldið í aðstöðu Vöku hf., Héðins-
götu 1-3, Reykjavík, föstudaginn 26. ágúst nk.
kl. 11:00 á eftirfarandi ökutækjum sem hér segir:
Greiðsla við hamarshögg.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
einungis debetkort eða peningar.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
18. ágúst 2022
UPPBOÐ
AHZ69
AIE60
AMV52
AVR50
AZJ87
BEJ18
BET80
BFM07
BPR29
BSK12
BSS76
BUT26
BZ178
DFS98
DJX60
EDD58
EVS07
FAY32
GAX45
GLM91
HFG42
HPT65
HPZ75
HRF96
HUM35
HVS95
IGY23
IZN40
JLH68
JR394
JT207
JUK50
JZX44
KHU54
KJS92
KPE07
LAL59
LHS14
LLL43
LP883
LUV50
MG786
MU025
MY824
NDX85
NJD31
NV979
NYM55
OP783
PKE36
PZK83
RE500
REP61
SA709
TFS41
UKZ94
UNU02
UPB98
UPH10
VB469
VDR06
VDR11
VGE53
VM293
VRA56
VTS22
VZZ76
YA025
YJR02
YJV13
YZU17
ZHG34
ZXE13
Einnig verður boðið upp:
Bátagír raðnúmer: 20320764.
Tilkynningar
Umhverfismat framkvæmda
Umhverfismatsskýrsla í kynningu
Efnistaka úr Litla Sandfelli í Þrengslum
Eden Mining hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats
efnistöku úr Litla Sandfelli í Þrengslum, Sveitarfélaginu Ölfusi.
Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd
og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar á skrifstofu Sveitar-
félagsins Ölfuss í Þorlákshöfn og hjá Skipulagsstofnun frá 19. ágúst til
3. október 2022. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðu
stofnunarinnar: www.skipulag.is.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt
fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3.
október 2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða
með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Kaffispjall í setu-
stofu kl. 11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Bókabíllinn, kemur í
Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir.
Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Bíósýning
kvikmyndahóps Hæðargarðs kl. 13. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Prjónakaffi frá kl. 10-
12. Jafnvægisæfingar 11– 12. Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa-
vinna, opin vinnustofa frá kl. 10. Brids kl. 13. Spiladagur; borðspil kl.
13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum
áður.
Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 9.30. Gönguhópar frá Borg-
um og inni í Egilshöll kl. 20, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna
göngu við sitt hæfi. Hannyrðahópur kl. 12.30. Opið frá kl. 8 til 15 og
heitt á könnunni frá kl. 8.30. Hittumst í sumarskapi og góða helgi.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Föstudagshópur í
handverksstofu kl. 10.30-11.30. Opin handverksstofa kl. 13-16 og síðan
er vöfflukaffið á sínum stað. Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
✝
Ingjaldur Indr-
iðason, fyrrv.
útgerðarbóndi og
bílstjóri, fæddist á
Stóra-Kambi í
Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi 11. apríl
1941. Hann lést á
Landspítalanum 8.
ágúst 2022.
Foreldrar hans
voru Indriði
Sveinsson, f. 23.
júní 1889, og Guðfinna Björg
Lárusdóttir, f. 29. nóvember
1901, bæði látin.
Hinn 21. apríl 1966 kvæntist
Ingjaldur eftirlifandi eiginkonu
sinni, Ingveldi Guðfinnu Þór-
arinsdóttur, f. 21. apríl 1948.
Foreldrar hennar voru Þór-
arinn Bjarnfinnur Ólafsson, f.
12. júlí 1920, og Guðjóna Jak-
obsdóttir, f. 25. júní 1925, bæði
látin. Börn Ingjalds og Ingveld-
ar eru: 1) Berglind Sonja Davis
innanhússarkitekt, f. 14. sept-
ember 1966, gift Steven Davis.
Þau eiga einn son. 2) Indriði
Sveinn rekstr-
arstjóri, f. 24.8.
1969, í sambúð
með Josephine Øs-
tern. Hann á þrjú
börn. 3) Arnheiður
Elísa viðskipta-
fræðingur, f. 5.11.
1975, gift Júlíusi
Helga Schopka.
Þau eiga tvö börn.
4) Guðfinna Eyrún
mannauðsstjóri, f.
7. mars 1980, gift Ólafi Gunn-
arssyni. Þau eiga fjögur börn.
Ingjaldur átti eitt barna-
barnabarn.
Ingjaldur lauk prófi frá
Bændaskólanum á Hvanneyri
og starfaði framan af við bú-
störf á Stóra-Kambi og útgerð.
Þau hjónin fluttu til höfuðborg-
arinnar árið 1987 og starfaði
Ingjaldur þar sem bílstjóri og
síðar leigubílstjóri fram til
starfsloka.
Útför Ingjalds fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 19. ágúst
2022, kl. 10.
Fyrstu kynni mín af Inga
tengdapabba voru fyrir aldar-
fjórðungi þegar við Arnheiður
eiginkona mín vorum að hefja
okkar kynni. Hann hafði þá um
áratug áður flutt í borgina með
fjölskyldu sína frá Stóra-Kambi í
Breiðuvík á Snæfellsnesi. Þar
ráku tengdaforeldrar mínir lengi
vel myndarlegt bú en færðu sig
seinna meir yfir í útgerð. Þegar
aðstæður í þjóðfélaginu breytt-
ust undir lok níunda áratugar
síðustu aldar tóku þau sig upp,
seldu jörðina og fluttu til borg-
arinnar. Ég hafði ekki þekkt þau
hjón lengi þegar mér varð ljóst
hversu vel þeim hafði liðið fyrir
vestan og að þar slógu hjörtu
þeirra enn, þótt þau væru flutt á
mölina. Þær voru óþrjótandi
sögurnar sem þau gátu sagt af
sveitungum sínum og samferða-
fólki frá þessum tíma. Sömuleið-
is átti Ingi margar og skemmti-
legar sögur af sjónum sem oft
fengu að heyrast við kvöldmat-
arborðið. Eftir að þau fluttu suð-
ur starfaði Ingi lengst af sem
bílstjóri, fyrst hjá Íslensku aug-
lýsingastofunni og síðar sem
leigubílstjóri og stundaði hann
leigubílaakstur fram á miðjan
áttræðisaldur.
Ingi var mikill rólyndismaður,
hæglátur og orðvar. Undir yf-
irborðinu leyndist þó húmoristi
með miklar skoðanir. Inga féll
aldrei verk úr hendi. Honum leið
best þegar hann hafði eitthvað
við að vera og alltaf hafði hann
einhver áform og hugmyndir.
Þau eru ófá áhugamálin sem
hann reyndi við um dagana.
Hann hafði mikinn áhuga á og
spilaði bridds. Áttræður byrjaði
hann að spila golf og náði ótrú-
legum árangri enda ástundunin
mikil. Það voru dýrmætar stund-
ir sem hann átti með dætrum
sínum á golfvellinum. Stangveiði
hafði hann gaman af og veiddi
maríulaxinn sjötugur í Elliða-
ánum. Ingi hafði yndi af ferða-
lögum og þau hjónin ferðuðust
víða erlendis, m.a. á skemmti-
ferðaskipum. Á seinni árum
ferðuðust þau mest innanlands,
ýmist á hjólhýsi eða húsbíl. Í
þeim útilegum hittum við þau oft
og þá var gjarnan spilað á spil
sem hann hafði mikið yndi af.
Nýjasta hugmynd Inga var að
prófa sjóstangaveiði og hann
hafði útvegað sér allar græjur í
það. Því miður náði hann aldrei
að prófa þær.
Ingi byggði sér og Ingu lítið
sumarhús við Flúðir í Biskups-
tungum og þar dvöldu þau tölu-
vert og leið vel. Hún fór þangað
til að njóta sveitakyrrðarinnar,
lesa og hvíla sig. Hann gat þó
ekki setið auðum höndum, hann
byggði við húsið og byggði stórt
geymsluhús og gróðurhús, rækt-
aði þar grænmeti og ber. Berin
sultaði hann og hindberjasultan
hans Inga afa þykir barnabörn-
unum besta sulta í heimi.
Sl. vor viðraði Ingi við okkur
hjónin þá hugmynd að kaupa lít-
inn bát og fara á strandveiðar.
Datt honum í hug að sonur okk-
ar, 18 ára, gæti viljað koma með
honum nokkra róðra til að verða
sér úti um pening. Þetta var
þrátt fyrir að á þessum tíma
væri sjúkdómur Inga orðinn
býsna langt genginn og farið að
verða ljóst í hvað stefndi. Þetta
fannst mér lýsa tengdapabba
vel. Vinnusamur fram á síðasta
dag og veikindin voru ekki eitt-
hvað sem ætlaði að láta stöðva
sig.
Ég kveð Inga tengdapabba
með mikinn söknuð í hjarta.
Blessuð sé minning hans.
Júlíus Helgi Schopka.
Ingjaldur Indriðason hefur
staðið sína síðustu vakt. Fyrr á
tíð var talað um að þeir væru
trúir yfir litlu sem ræktu störf
sem ekki þóttu sérlega merkileg
af alúð og samviskusemi. Eð-
almennið Ingjaldur gæddi þetta
orðalag nýrri merkingu. Sem
sendimaður Íslensku auglýs-
ingastofunnar í áratugi ávann
hann sér hvarvetna einstaka
virðingu. Viðskiptavinir og birgj-
ar jafnt sem starfsfólk og fjöl-
skyldur þeirra lærðu skjótt að
meta þennan öðling. Nei var
ekki til í orðaforða þessa glæsi-
mennis sem hélt sér svo vel að
það virtist steypt í formalín.
Ingjaldur sýndi og sannaði
hversu starf hans var mikilvæg-
ur hlekkur í góðri þjónustu enda
bar hann titilinn sendiherra á
auglýsingastofunni. Þau voru ófá
símtölin og póstarnir sem okkur
bárust þess efnis hversu ein-
staklega þægilegur og áreiðan-
legur þessi fulltrúi stofunnar
væri.
Ingjaldur hafði ákveðnar
skoðanir á þjóðmálum. Hann
setti mál sitt fram með afar rök-
vissum hætti og er ekki laust við
að skoðanir okkar félaga á
kvótakerfinu hafi smám saman
hneigst í átt til þess sem hann
taldi réttlátt og sanngjarnt. Það
eru forréttindi að hafa orðið
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
vera samferða- og samverka-
menn Ingjaldar Indriðasonar.
Jónas Ólafsson,
Ólafur Ingi Ólafsson.
Ingjaldur
Indriðason
Í dag kveðjum við góða vin-
konu, hana Siggu okkar.
Við unnum allar saman, með
okkur tókst góður vinskapur og
höfum við verið duglegar að gera
eitthvað saman ásamt mökum í
gegnum tíðina. Hápunktur ársins
var að hittast í Mórudalnum yfir
eina helgi þar sem var mikið talað
og hlegið saman, þar naut fag-
urkerinn hún Sigga sín vel. Hún
skreytti allt hátt og lágt með því
sem hún fann í náttúrunni sem
Sigríður
Gísladóttir
✝
Sigríður Gísla-
dóttir fæddist
14. janúar 1958. Hún
lést 25. júlí 2022. Út-
för hennar fór fram
5. ágúst 2022.
Eftirfarandi minn-
ingagrein birtist
með öðru nafni á út-
farardegi, beðist er
velvirðingar á mis-
tökunum.
gerði einstaka
stemningu í þess-
um ferðum okkar.
Það verður tóm-
legt að heyra ekki
hláturinn hennar,
finna ekki fyrir
góðu nærverunni
sem hún bjó yfir
og hlusta á sögurn-
ar hennnar.
Nú kveðja þig vinir
með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Elsku Sigrún, Svanhvít, Elísa
og fjölskyldur missir ykkar er
mikill og hugur okkar er hjá ykk-
ur
Sigrún, Ólafur, Rut,
Benedikt, Soffía, Guðjón,
Guðrún og Karl.
Þau leiðu mistök urðu við
birtingu minningagreina um
Hörð Sigurðsson, sem birtust
í blaðinu 12. ágúst sl., að
æviágrip og mynd af Herði
Vigni Sigurðssyni birtist.
Morgunblaðið biður alla hlut-
aðeigandi velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar