Borgfirðingabók - 01.12.2015, Page 5
5
B O R G F I R Ð I N G A B Ó K 2015
Frá Sögufélagi Borgarfjarðar
Hér hefur þú, lesandi góður, 12. árgang Borgfirðingabókar frá endur-
reisn hennar árið 2004. Það er margt sem hafa ber í huga við samsetningu
héraðs rits en leitað hefur verið fanga jafnt í nútíð og fortíð hvað varðar
efnis tök og að sama skapi hefur ritnefnd kappkostað að efnisdreif ing sé
nokkuð jöfn en starfssvæðið er sem fyrr Mýra- og Borgarfjarðarsýsla.
Öflun efnis á sér nokkrar ólíkar leiðir – í sumum til fellum hafa höfund-
ar boðið fram efni eða ritnefnd verið bent á af þriðja aðila efni sem
vel færi í bókinni og vert væri að athuga. Stundum hefur ritstjórn haft
pata af sýningu, fyrirlestri, jafnvel námsritgerðum sem getið hefur af
sér birtingu efnis í framhaldinu. Þá lítur ritnefnd til dreif ingar efnis
hvað varðar ólíkan aldurshóp lesenda. Það má til gamans geta þess að
aldursmunur á elsta og yngsta höfundi efnis í bókinni að þessu sinni er
ríflega áttatíu ár. Það gefur auga leið að með slíku aldursbili ætti fjöl-
breytni bókarinnar að sama skapi að vera mikil – það er hið minnsta
von ritnefndar.
Allt það sem hér að framan greinir er afleiðing þess að Sögufélaginu
stend ur hugur til, og ræddar hafa verið leiðir til þess að auka sölu bókar-
innar enn frekar, umfram sölu til hinna fjölmörgu áskrifenda hennar.
Í sjálfu sér ætti markmiðið að vera það að sem flestir íbúar svæðisins,
ásamt þeim fjölmörgu sem dvelja í sumarhúsum á svæðinu til lengri eða
skemmri tíma þekki til bókarinnar og efnis hennar hið minnsta.
Það er í senn gleðiefni og gefur góðar vonir fyrir komandi ár, hversu
reiðubúið fólk hefur verið varðandi efnisöflun í bókina í ár sem og und-
an farin ár. Með öðrum orðum má segja að nánast allir sem leitað var til
hafi verið boðnir og búnir að leggja ritnefnd lið, hvort sem um var að
ræða höfundana sjálfa, milliliði hvers konar, myndasmiði og ekki síst
þá sem lánuðu myndir eða útveguðu annað efni hennar, eða styrktu út-
gáfuna á einhvern hátt. Öllu þessu góða fólki þakkar ritnefnd af alhug og
minnir enn á það sem áður hefur komið fram, að það er í rauninni vegna
þessarar fornfúsu hjálpar sem mögulegt er að koma ritinu út á ári hverju