Borgfirðingabók - 01.12.2015, Page 100
100
B O R G F I R Ð I N G A B Ó K 2015
En Sæmi maulaði í makindum, kræsingar Ástu á Oddsstöðum, alls
ósnortinn af þjáningum meðbræðra sinna. Loks settist hann aftur að
stýri og María, María, María, María! Kom í gusum úr hverju sæti.
Landmannahellir var skoðaður, en ekki var fært öðrum en göngugörp um
að kanna hann til enda. Mjólkurbú Flóamanna var heimsótt og heillaði
alla sem sáu. Ekkert bar þar markvert við, nema minnstu munaði að
Dodda sjómanni yrði stungið í tóman mjólkurbrúsa frá Litla – Hrauni.
Næst segir af dvöl okkar í aldingarðinum Eden. Það hefur löngum
verið talið mikið staðfestuleysi að þau Adam og Eva skyldu ekki tolla í
þeim unaðslega lundi. Ekki var þarna að finna neinar menjar af búslóð
þeirra hjóna eða prívatgripum, utan fíkjublað frúarinnar. Rómantískir
unglingar plokkuðu rósir þarna í Edens fínum rann til að bera við barm
sér, aðrir plokkuðu víndrúfur, og heimamenn peninga ferðalanganna.
Ekki vorum við lengi í Paradís, gistum aftur syndina, og fundum að
heima er bezt. Striplingar þustu í sundlaugina í Laugaskarði, aðrir
heimsóttu helstu sögustaði Hveragerðis, hótelið og sjoppurnar. Engin
taldi sig eiga erindi í náttúruna á staðnum, enda allir vel á sig komnir
Mynd úr einni af ferðum Umf. Dagrenningar. Á myndinni má m.a. sjá Ástríði Sig
urð ardóttur Oddsstöðum, Petru Pétursdóttur Skarði, Ingvar Ingvarsson Múlastöðum,
Kristján Davíðsson Oddsstöðum og Sigurð Kristjánsson Oddsstöðum.