Borgfirðingabók - 01.12.2015, Page 142
142
B O R G F I R Ð I N G A B Ó K 2015
Seinni holan var boruð á Þorra og Góu 2002 fyrir Bergþór Kristleifs-
son (f. 1959). Hún er skáhola, hallar um 30 ° frá lóðréttu, 606 metra
djúp og gaf í fyrstunni sjálfrennsli nálægt 26 lítrum/sek. af 62 °C heitu
vatni. Með tímanum hefur rennslið orðið nær 20 lítrum/sek. Friðfinn ur
Knút ur Daníelsson boraði holuna. Hún var boruð með lofthamri og
140 mm borkrónu niður í 336 metra, en með vatnshamri og 115 mm
borkrónu þaðan og í botn. Lofthamrar og loftborkrónur hafa verið not-
uð hér á landi frá því um 1980. Því öflugri loftpressur, sem menn hafa,
þeim mun dýpra kemst loftborinn. Ekki veit ég til, að neinn verktaki
annar en Friðfinnur hafi notað vatnshamra við jarðboranir á Íslandi.
Friðfinnur hafði aðeins notað vatnshamarinn tvisvar, áður en hann kom
á Húsafell.
Úlfsstaðir í Hálsasveit. Laugar eru á Úlfsstöðum. Þar skammt frá
voru boraðar tvær holur með Höggbor 1 haustið 1957 fyrir Þorstein
Jóns son (1896–1991), bónda. Önnur holan er 17 metra djúp en hin
14 metrar. Vatn úr annarri holunni og lauginni dugði til húshitunar.
Aftur var borað á Úlfsstöðum vorið 1993, þegar boruð var 130 metra
djúp hola með Landráði, elsta bor Ræktunarsambands Flóa og Skeiða á
Sel fossi. Holan er með 5” fóðringu niður á 25 metra dýpi og gefur með
djúp dælu um 8 lítra/sek. af 54 °C heitu vatni.
Norðurreykir í Hálsasveit. Norðurhver er í landi Norðurreykja.
Hita veitu leiðsla var lögð sumarið 1981 frá Norðurreykjum að Signýjar-
stöðum.
Stóriás í Hálsasveit. Einar níu loftborsholur voru boraðar í Stóraási
haustið 1982. Allar eru þær grunnar, aðeins ein nær 37 metra dýpi.
Hins vegar var þar 203 metra djúp vinnsluhola boruð í janúar 2003 fyrir
Kolbein Magnússon (f. 1958), bónda. Verktaki var Friðfinnur Knútur
Daníelsson. Líklega gefur holan um 10 til 15 lítra/sek. af 76 °C heitu
sjálfrennandi vatni.
MÝRASÝSLA
GAMLI HVÍTÁRSÍÐUHREPPUR
Háafell í Hvítársíðu – Þorbjörn Oddsson (f. 1957), bóndi á Háa-
felli, lét bora 63 metra djúpa holu í landi jarðar sinnar haustið 1992.