Borgfirðingabók - 01.12.2015, Page 183
183
B O R G F I R Ð I N G A B Ó K 2015
18 MENN UNNU VIÐ BYGGINGU LAUGARINNAR
Allstór vinnuflokkur vann að byggingu sundlaugarinnar 1931 og
nokkr ir ungmennafélagar unnu auk þess í sjálfboðavinnu. Sést þetta á
vinnu skýrslum og reikningum sem til eru í Hlöðutúni.
Byrjað var um miðjan maí, fyrst tveir til þrír menn en síðan hófst
vinnan af krafti um 27. maí og stóð allan júnímánuð og fram um
miðjan júlí. Karlarnir unnu 10 tíma á dag. Einnig var unnið fáeina daga
í nóvember.
Jón Jónsson frá Gilsbakka, þá búsettur á Stafholtsveggjum, vann
lengst, alls 55 daga, og nær vinnuskýrsla hans yfir mun lengri tíma en
þann sem tilgreindur er hér að ofan. Jón var verkstjóri og tók 1,20 kr.
á tímann. Guðmundur Tómasson virðist einnig hafa verið fagmaður,
hann var á sama kaupi, en vann mun skemmri tíma. Hinir fengu 80 aura
á tímann. Jónas Ólafsson vann 53 daga en hann var umsjónarmaður
verksins fyrir hönd ungmennafélagsins og skrifaði upp á alla reikninga.
Önundur Kr. Bjarnason og Guðlaugur Bjarnason unnu yfir 40 daga og
Sigvaldi Jóhannsson, Jóhannes Bjarnason, Þorsteinn Jónsson, Ingólfur
Árnason, Jón Einarsson og Sigursteinn Þorsteinsson unnu yfir 20 daga.
Björn Ólafsson og Sveinn Bjarnason unnu hvor sinn daginn.
Fimm ungmennafélagar unnu svokallaða gjafavinnu. Sigurður
Auðbergsson og Jón Á. Brynjólfsson unnu 3 dagsverk en 10 tímar voru
taldir dagsverk, Ingólfur Árnason vann 2 dagsverk, Gissur Brynjólfsson
eitt og Kjartan Bergmann Guðjónsson tæplega 1 dagsverk.
Um átján menn unnu því að sundlaugarbyggingunni sumarið
1931. Fleiri komu að málinu með flutningum og hestlánum og fleiri
viðvikum, bæði þetta sumar og sumarið 1930.
Lengi vel sáust hleðslur gömlu
torf laugarinnar sem stóð neðan
við hverasvæðið. Hveralækurinn
rann í laugina og einnig vatn úr
tveim ur litlum hverum. Öll um
merki voru afmáð þeg ar sveppa
húsin voru byggð. Ljós mynd:
Helgi Bjarnason.