Borgfirðingabók - 01.12.2015, Page 200
200
B O R G F I R Ð I N G A B Ó K 2015
fer í volgum laugum allan okkar æfinga- og keppnisferil en þurft um
ekki að keppa í ísköldum ám. Kjarninn í liði Stafholtstungna á síðari
blómatímanum sem stóð til árs ins 1972, var skipaður unglingum af
Laugalands/Varmalandstorfunni og nágrannabæjum, krökkum sem
segja má að hafi átt sitt annað heimili í laugunum.
Björg H. Kristófersdóttir var okkar fremsti íþróttamaður. Hún lærði
að synda í gömlu lauginni og var barnung þegar hún, afar óvænt, sigraði
eina fremstu sundkonu Reykdæla á móti sem haldið var í nýju lauginni
á Varmalandi. Síðar fetaði hún í fótspor Jóns Þorsteinssonar, reyndi fyrir
sér á stærri vettvangi í sundinu og fór í íþróttakennaraskóla.
Skólarnir höfðu hug á því að byggja nýja sundlaug sem hafði nokkru
áður verið sett á skipulag neðan við barnaskólann. Ungmennafélagið
samþykkti boð um að taka þátt. Einhver peningaupphæð var lögð fram
en meginhluti framlags félagsins var í formi sjálfboðinnar vinnu fél ags-
manna. Stóð félagið við sinn hlut. Sundlaugin var byggð 1957 og 1958
og formlega tekin í notkun 10. ágúst 1959.
Þegar hætt var að nota „nýju“ sundlaugina sem nú var vitaskuld orðin
„gamla“ sundlaugin, var helsta eign ungmennafélagsins verðlítil orðin.
Hún var þó seld ásamt laugarskúrnum, að því er fram kemur í reikningum
félagsins 1962. Eigendur Laugalands keyptu sundlaugarkerið, að
minnsta kosti, og væntanlega einnig skúrinn. Sundlaugin var notuð sem
vatns geymir fyrir gróðurhúsin til ársins 1988 og eftir það var jafnað yfir
og þar er nú hestagerði. Lýkur þar með sögu af sundlaugum.
Eins og sést víða hér að framan voru sundlaugarmálin mikið til um-
fjöllunar í starfi Ungmennafélags Stafholtstungna, frá stofnun og þar til
það hætti afskiptum af sundlaugarrerkstri. „Sundkennslan hefur ávallt
verið stolt þess og félagslegur styrkur í öll þessi ár,“ sagði Þorsteinn
Jónsson á Kaðalstöðum, formaður Ungmennafélags Stafholtstungna, í
ávarpi á 40 ára afmælishófi þess á Varmalandi 1952.