Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 3

Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 3
Arnarhjónin, Dagarnir líða einn af öðrum. Örninn situr með stýfðum fjöðrum; nætur bjartar og norðrið J>ráir, nöpur er vistin, ófrelsið háir loftsins fullhuga, fuglanna gramur fangi er í búri. Aldrei samur frá þeirri stund, er þeir vilt’ ann, veidd’ anu verður jöfurinn, svo þeir meidd’ ’ann: stýfðu vængina, særðu ’ans sál, sugu út logheitt vængsins stál. Því líða dagarnir einn sem aðrir. Ergja er í skapi, því stýfðar fjaðrir og vængirnir breiðu brotið ei fá brandana, hlekkina. þó er hans þrá sterkari, efldari, óðari en áður. ' Órór, viltur, í lundu bráður sit’r ’ann á tilbúnum steini og stýfðar stóru fjaðrirnar, brotnar, ýfðar, reitir ’ann, rífur ’ann risi stallanna. Röm er þráin til bláu fjallanna. Skapið eitt ónógt er brandana að brjóta, Brakar í viðum, en kraftarnir þrjóta

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.