Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 34

Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 34
80 ið vitneskju um, hvað grátinum hafði valdið, því Tumi hafði sofnað við barm hennar. — ------“Af hverju grætur þú, Tumi minn?” spurði móðir hans blíðlega. “Af því eg hefi engan pabba hjá mér, eins og Inga litla. Svo var eg að hugsa um það síðan, hvort það væru sóleygjar og fíflarlþar sem pabbi minn er.” “Hvað varstu að tala um Ameríku, barnið mitt? Hver sagði þér frá henni?” “Pabbi hennar Ingu sagði —” Þórunn kysti á enni Tuma litla. Barmurinn gekk í öldum. “Hvar er Ameríka, mamma?” “Það er stórt land, barnið mitt. Langt, langt vestur í hafi. Þar er sumarið lengra en hérna. Dag- urinn heitari. Þar eru risavaxin tré. Víðáttumiklir skógar, þar sem vilt dýr falla fyrir skotum veiðimann- » anna. Og þegar þau fá dauðasárið öskra þau svo hátt að jörðin skelfur.” “Á egiþá engan pabba?” Þórunn gat engu svarað strax. Hún vildi ekki segja ósatt. Svo sagði hún: “Þú átt engan föður, barnið mitt. Og það er eng- inn, sem getur gengið þér í föðurstað. Þú átt engan, sem vill kannast við þig sem son sinn, engan, sem breiðir út faðm sinn á móti þér og segir: “Eg er faðir þinn”. Þú átt engan föður. Nema Guð. Hann er þér nálægur. Hugsaðu um hann og þér mun aldrei líða illa. Þá muntu ekki gráta. Því trúin á

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.