Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 27

Rökkur - 15.05.1922, Blaðsíða 27
73 inn, hafði vaknað. Eg hafði aldrei fyr dvalið heilf vor uppi í sveit og þessu vorinu mun eg aldrei gleyma. Þegar alt vaknaði á ný og laufin fóru að springa út og jörðin kom græn undan snjónum, hvílíkt yndi veitti það mér ekki. 1 hlíðunum voru dökkgrænar rákir og hvítir teinar á milli. Og ilmur furutrjánna sígrænu, sem aprílvindarnir báru að vitum mínum. og jafnvel gróðrarskúrirnar, alt hafði friðandi áhrif á sál mína. I apríl settum við kartöflur og við Pétur unnum hlið við hlið. Kvertþjóðin var þar einnig. Stúikurnar settu marglita klúta á höfuð sér og tóku körfur sínar og settu kartöflur í rákirnar. Eftir það var minna að gera í nokkra daga, og morgun einn snemma, er eg sat fyrir utan kofann og- las, kom síra Karl og sagðist þurfa við mig að tala. Við gengum niður í þorpið og þá nefndi hann mig skírnarnafni mínu í fyrsta sinn og mælti: “Eyríkur! Þú ert maður, sem heimurinn hefir leik- ið grátt. En köllun þín er ekki að vinna á ökrum úti, annast sáningu og uppskeru. Köllun þín er önn- ur. Þér er annað starf ætlað, annað æðra starf. Þú ert ungur og eg er gamall orðinn. Þú þekkir heim- inn og eg að eins að litlu leyti. Þér brugðust vonir um hann, en eg þekki heiminn lítið eftir fjörutíu ára dvöl hér. Og löng sumarkvöldin sit eg og oft og hugsa. að eg sé að verða of gamall, að sjón mín sé að daprast og eg sé nú vart færi til þess að kenna bcrnunum og þú ættir að taka við því starfi mínu. Eg Ieit upp, á þenna hávaxna, tígulega mann. Mér

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.