Rökkur - 01.09.1929, Blaðsíða 41

Rökkur - 01.09.1929, Blaðsíða 41
Belgía. II. Land og þjóð. Handbók. Battice, borg í Liége-héraði, íbúatala 4250. Beernaert, Auguste Marie Francois (1820 —1912), stjórnmálamaður. Nokkrum sinnum ráð- herra og einu sinni forsætisráðherra. Tók þátt í friðarsamkundunum í Haag 1899 ,og 1907. Ræðuskörungur mikill. Árið 1909 fékk hann friðarverðlaun Nobels. Beernen, borg í Vestur-Flanders, nál. Bru- ges, Sbúatala 5200. Beers, Jan van (1821—88), flæmskt ljóðskáld. Ljóð hans voru þýð, hefluð og innileg. Beers var einn af áhrifamestu stuðningsmönnum flæinsku þjóðermshreyfingarinnar og beitti á- hrifum sínum fyrir hana með 'því að yrkja hvatningarljóð. Af verkum hans má nefna „Jon- gelings droomen“, „Levensbeelden" o. fl. Belgicaleiöangurinn eða belgiska förin til Suðurpóls-landanna 1897—99, svo kallaður eftir leiðangursskipinu, sem hét „Belgica". Skipstjóri þess var belgiskur flotaforingi, de Qerlache, og var Roald Amundsen stýrimaður á skipinu. Vísindalegur árangur af þessari för varð mikil!. Skrifaði Adrien de Gerlache bók um ferðina: „Quinze mois dans l’Antarctique, Paris et Brux- elles, 1902“ Belgica-sundið eða Gerlache-sundið, sund á

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.