Rökkur - 01.09.1929, Blaðsíða 44
42
Brackeleer, Ferdinand de (1792—1883), list-
málari.
Braine-ÍAlleud, lítil verksmiðjuborg í Bra-
bant, 18 krn. fyrir sunnan Bruxelles, 9—10 000
ibúar.
Braine-le-Comte, bær í Hainault, við ána
Senne, milli Mons og Bruxelles. Ibúatala 9
—10 000.
Broqueville, Charles Marie Pierre Albert de,
stjórnmálamaður og barón, f. 1860, myndað:
ihaldsráðuneyti (kaþ.) 1911. Hann var forsætis-
ráðherra 1914 og þangað til 1918 (í júlí), varð
siðan innanríkismálaráðherra í Delacroix-ráðu-
neytinu, en gekk úr stjórninni eftir kosning-
arnar í nóvember 1919.
Brouckére, Charles Marie Joseph Ghislain
de B. (1796 1860), stjórnmálamaður og sjálf-
stæðissinni. Bróðir hans, Henri de B. (1801
—91) var og kunnur stjórnmálamaður.
Briigge (á frakknesku Bruges) höfuðborgin
i Vestur-Flanders, 13 km. frá Norðursjónum,
fbúatala 54 000—55 000. Þessarar frægu og
merku borgar er þegar getið á 8. öld og var
á 12.—16. öld mesta sjóverzlunarborg í Norður-
Evrópu, miðdepill skandinaviskrar og enskrar
verziunar. Á mestu mektardögum þessarar borg-
ar voru íbúarnir um 200 000. Eru enn í Bru-
ges leyfar þessara fornu veldisdaga, fagrar
byggingar i gotneskum stíl, aðallega ráðhúsið,
og margar kirkjur. Söfn mörg. Nú er Bruges
aftur í framför (sjá síðar um Zeebrugge og
hafskipaskurðinn frá Br. þangað). Ætla rnenn,