Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Page 20
fór ég að hugsa um, hvernig á
þessu stæði, að hann tók strax flugu nr. 4,
en ekki nr. 6 — þó voru báðar dökkar, —
en að vísu ekki sama tegund. Var það
stærðarmunurinn, eða var laxinn að byrja
að taka þessa stundina, en vildi ekki taka
áðan? Ég ákvað því að reyna aftur smærri
flugu, var svo heppinn að ég fann í box-
inu Black Doctor nr. 6, einmitt sömu
tegund og laxinn tók áður, en það varð
árangurslaust, ég reyndi „Charminn" aft-
ur og Mar Lodge nr. 5 eða 6, en allt án
árangurs, ekki einu sinni rís í þetta skipti.
en fiskurinn var til, því liann var annað
kastið að sökkva. Nú ákvað ég að reyna
verulega stóra flugu, en því miður fann
ég enga stærri en nr. 2 „Silver Ranger“.
Eftir nokkur köst var fiskur á. sem reynd-
ist 31/2 kgr. hængur. Ég vildi ekki gefast
upp við smáu flugurnar, en þær reyndust
enn gagnslausar. Þar næst setti ég á Cross-
field nr. 3, eftir nokkur köst var fiskur
á; var það hængur 4 kgr. Ég kastaði nú
sömu flugunni aftur og það fór eins og
áður, að eftir nokkur köst var fiskur á,
hrygna, rúm 5 kgr. Nú voru komnir 4
fiskar á land, eftir tæpa 3 tíma. Ég tók
mér hvíld, fékk mér kaffi úr hitabrúsa og
hugsaði um þessar tilraunir mínar. Voru
þetta allt tilviljanir? Ekki virtist, að það
væri nein sérstök tegund, sem hann vildi
— Black Doctor, Silver Ranger og Cross-
field — dökkar og ljósar og mismunandi
stærðir, 2, 3 og 4, en bara ekki smærri.
Nú átti ég eftir aðeins klukkutíma af
þeim tíma, sem ég ákvað að vera í ánni,
eða til kl. 6 e. h., því ég átti langan veg
fyrir höndum um kvöldið, og þurfti að
skila veiðarfærunum í hús nokkurn spöl
frá ánni. Ég byrjaði aftur með smáu flug-
urnar, og eftir að ég var búinn að skipta
einu sinni um flugu, tók fiskur „Mar
Lodge“ nr. 5 eða 6. Það var smálax tæp
2 kgr., í göngu, því hann var grálúsugur,
og er ég sannfærður um að þessi lax hefði
tekið hvaða flugu sem hann hefði séð,
hvort sem hún hefði verið stór eða siná,
ljós eða dökk. Enn reyndi ég með sömu
flugu, en ekkert ris eða hreyfing! Batt á
„Blue Charm“ nr. 3, og á hana kom
lirygna tæp 4 kgr., og að síðustu á sömu
flugu 3i4 kgr. hængur, og var þá tíminn
búinn. Á land voru komnir 7 fagrir fisk-
ar.
Þessi stutta veiðistund er að mörgu
leyti athyglisverð. Fyrst er nú það, hvað
fiskurinn var ör; það er ekki oft sem það
kemur fyrir, að lax sé á, allt að því um
leið og kastað er út, og það í svo mörg
skipti, 7 fiskar á 4 tímum, og þó verið að
fikta inn á milli og gera ýmsar tilraunir,
eins og að framan getur, og ekki sízt er
þetta athyglisvert vegna þess, að nú voru
laxarnir ekki í göngu eða nýgengnir,
nema aðeins einn, sá minnsti, eins og
áður er tekið fram. Svo er flugustærðin.
Sá, sem nýgenginn var, tók smáflugu en
hinir ekki. Allir fiskarnir eru i sama hyln-
um og allir taka á nákvæmlega sama stað
í honum, á ekki stærri fleti en pott-
hlemmur gat þakið.
Ég þykist hafa gert fullkomlega nægi-
legar tilraunir með smáu flugurnar, en
aftur á móti hafði ég ekki tækifæri til að
nota stærri flugu en nr. 2, svo ég veit
ekki hvað hann kynni að hafa tekið
stóra flugu.
Þessi veiðisaga er ekki lengri, en hún
verður mér minnisstæð.
Með kærri kveðju.
Þ. 1
18
VUBIMAOUKINN