Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Qupperneq 22

Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Qupperneq 22
snerum niður með ánni aftur, til að hitta félagana og halda heim í kofa, mættum við þeirn á nriðri leið og sáum strax á- lengdar, að eitthvað óvenjulegt hafði komið fyrir þá. ,,Hvernig gekk það?“ hrópaði Deiv, strax og hann komst í kallfæri. Þetta var nú ekki h'kt honum, því venjulega förum við í kringum hvorn annan eins og köttur í kringum heitan graut. Hver reyndi að komast eftir veiði hjá hinum, áður en hann lét uppi sína eigin veiði. I þetta skipti var Deiv auðsjáanlega með eitthvað sérstakt í poka- horninu. Það kom líka á daginn, að hann var með fisk, og það engan smáfisk. Við, sem vorum allslausir, gláptum af undrun er Deiv hampaði ljómandi fall- egum 26 þumlunga tirriða, er vóg hvorki meira né minna en 614 pund á mína eigin vog, sem er metfé og lýgur aldrei. Við Sam spurðum í þaula, en Deiv sagði flissandi, „að þetta hefði nú verið nafntogaður silungur og borið nafnið Geronimo í lifanda lífi.“ Að þessari fyndni hlóu þeir báðir dátt, en okkur Sam var ómögulegt að finna neitt hlægilegt við þetta og mér datt helzt í hug, að Deiv hefði verið full-lengi út í hinum brennandi geislum sólarinnar. Þegar Deiv fór að stillast sagði hann: „Nú skal ég segja ykkur hvernig þetta atvikaðist. Þið munið eftir djúpa hylnum skammt fyrir neðan Lodí. Ég sagði við sjálfan mig: Hvar myndir þú liggja í ánni á svona heitum og björtum degi, ef þú værir silungur? Auðvitað í dýpstu holunni, sem þú gætir fundið. — Jæja, ég þangað. Set saman stöngina og vel mér flugu eftir kjörorðinu: Því minni fluga, þess stærri fiskur, síðan bind ég uppáhald- 20 ið mitt, svörtu tvívængjuna, stærð 16. Sveifla með línunni nokkrum loftsveifl- um og sendi fluguna í hárnákvæmu kasti við hliðina á fallna trédrumbnum. Kjamms! og hann er á! Hann hentist upp og niður hylinn og var ekki kominn á land fyrr en eftir klukkutíma og kort, og oft munaði litlu að 3x héldi í þessum óskapa átökum.“ Ég tel mig ekki einn í hópi þeirra, sem aldrei trúa veiðisögum félaga sinna, þótt þær séu nokkuð ævintýralegar, en þetta var of mikið. „Deiv. Nú lýgurðu ábyggilega alveg eftir nótum.“ Deiv þurrkaði sér um augun, en hlát- urinn sauð ennþá í honum. „Hvað segir þú Bill? Þeir trúa mér ekki.“ Bill sagði, að bezt væri, að hann segði nú allan sannleikann í málinu. „Eins og þið vissuð, héldum við niður- með og reyndum víða, en urðum ekki beins varir. Þegar við loks komum niður að Lodí, fórum við inn í „sjoppuna" og fengum okkur glas. Eigandinn, Rengla gamla, var ekkert blíð á manninn frekar en fyrridaginn og gátum við nú ekki láð henni það, í þessum fjárans hita.“ Sú gamla hefir altaf verið önug við veiðimenn og enginn fengið að renna í hennar hylji, eftir að hún kom í þorpið. „E-r við komum út aftur, datt okkur í hug, að gaman væri að sjá þennan fræga silung, sem við höfðum heyrt sagt frá í þorpinu, og um leið fornar slóðir einu sinni enn. Við skriðum undir girðinguna og löbbuðum gegnum kjarrið á gilbarm- inum, og niður að ánni rétt fyrir ofan nýja vatnið. Við kíktum í hylji kerlingar, og þar sem áin rennur í djúpa stokknnm, sáum við pevja liggja; — þarna lá heima- Veidimasuiunn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.