Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Side 27
„Vatnið heima,
ó, Drottinn minn!“
Eitt a£ því, sem veiðimenn rabba stund-
um urn í sambandi við laxinn og háttu
hans, er hvernig liann fari að því, að rata
aftur til heimkynna sinna eða æsku-
stöðva, eftir dvölina í sjónum.
Niðurstaðan af slíkum bollaleggingum
verður ævinlega sú, að menn afgreiða
málið með hinni gömlu og handhægu
skýringu, sem nefnd er eðlisávísun —
þessu dularfulla og órannsakaða skiln-
ingarviti, sem allar skepnur — þar með
talin æðsta skepna jarðarinnar — eru
gæddar, í mismunandi ríkum mæli.
Vísindin eru þó ekki fyllilega ánægð
með þessa skýringu. Þau vilja fyrst ganga
úr skugga um, hvort eitthvert hinna
fimm, gömlu og „vísindalega viður-
kenndu“ skilningarvita geti ekki verið
svo óvenjulega næmt hjá laxinum, að
hann geti notað það sem einskonar „átta-
vita“, til þess að „sigla eftir“ upp í árnar.
Við skulum þá taka til athugunar þessi
fimm skilningarvit, sem við lærðum um
í barnaskólanum, og í þeirri röð, sem
þau voru venjulega talin þar, sem sé —
sjón, heyrn, ilman, smekkur og tilfinn-
ing.
Er sennilegt að fiskurinn sjái svo langt,
að það komi honum að notum í þessu
efni? Til þess þyrfti hann að sjá gegnum
láð og lög, m. ö. o. vera gæddur einhvers-
konar fjarskyggni, en það er ekki eitt af
hinum vísindalegu viðurkenndu skiln-
ingarvitum. Það væri líklega eins gott að
muna eftir að ganga varlega að veiði-
stöðunum ef þetta ætti að koma upp úr
dúrnum!
Er hugsanlegt að hann heyri svo vel,
að hann geti þekkt ána sína á nið hennar,
ef hann kynni að vera frábrugðinn nið
annarra vatna? Já, þá þyrftu menn að
gæta þess að liafa ekki hátt við árnar!
Er hann ef til vill svo þefnæmur, að
hann finni einhvern mun á lyktinni af
vatninu, eða árbotninum? Honum ætti þá
ekki að verða skotaskuld úr því, að finna
iyktina af okkur, þegar við komum til
þess að heimsækja hann. En honum er ef
til vill ekki gefin sú gáfa, að óttast
mannaþef!
Finnur liann máske á bragðinu af ánni,
livort hún er æskuáin lians eða ekki? Fær
hann þá ekki óbragð í munninn, þegar
við hendum ánamöðkum, gerfiflugum og
allskonar „rusli“ út í árnar?!
Og að lokum: Getur verið að hann
hafi svo næmar taugar, að hann finni mis-
mun á því hvernig árstraumurinn leikur
urn hann, og það sé straumfall árinnar,
sem hann fer eftir? Ekki finnst mér það
ólíklegra en hitt, nema síður sé.
Þú heldur nú líklega, lesandi góður,
25
Veiðimasurinn