Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Síða 37
Fágret veiði.
Það gerast undur og stórmerki við
Jótland um þessar mundir. Fyrir skömmn
\eiddist þar risaskjaldbaka ein, svo ier-
leg, að fá dæmi eru um slíka veiði þeirr-
ar tegundar. Er hún sögð hafa verið um
700 kg. að þyngd og talin mörg hundr-
uð ára gömul. Þá veiddist þar einnig
andarnefja, sem kvað hafa verið hin und-
arlegasta skepna. Því næst barst út sú
fregn, að sæslanga ein mikil hefði veiðzt
við Hals. Þetta reyndist þó ekki rétt, þeg-
ar betur var að gáð, heldur var það risa-
áll, tveir metrar á lengd, 1 meter í þver-
mál og 21 kg. að þyngd. Einn „frændi“
hans hefur veiðzt áður við Danmörku
og er geymdur í Danmarks Akvarium í
Charlottenlund.
Yeiðimenn!
Munið eftir að tilkynna blaðinu breyt-
ingar á heimilisfangi yðar. Munið einnig
eftir að senda greinar um áhugamál yð-
ar, sem veiðina \arða, myndir og
skemmtilegar veiðisögur.
Sérstaklega væri æskilegt að fá eitt-
hvert efni frá lesendum úti á landi. Þér
hljótið að eiga ýmislegt gott í fórum yð-
ar, ef þér leitið vel.
Stflngnvi^erdír.
Munið að nú er rétti tíminn til viðgerða á veiðistöngunum. Látið það
ekki dragast fram að veiðitíma. Sæki stengur heim, ef óskað er.
VALDIMAR VALDIMARSSON
Hringbraut 85 Sími 80572
Veiðimaðurinn
35