Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Blaðsíða 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Blaðsíða 30
jafnóðum og hugurinn sagði til? Nei, —þrautin var nú ekki þyngri en það. Og eftir alls konar ,,flugur“, stórar og smáar og ýms, bæði stutt og löng köst (uppköst) urðu þessar vísur til, und- ir garnla og góða vorlaginu: „Þú vor- gyðja svífur“. Nú syngjum vér kátir vort laxveiðilag því létt er við sönginn að kynnast, og lundin er glöð því að ljúft er í dag á laxveiðistundir að minnast. Þótt árlega hljótum við skammdegisskammt við skundum á veiðar í huganum samt. :,: En svo kemur vorið og veröldin skín og vetrarins rætist úr draumum. Þá elvan þig kallar að koma til sín að kistum og fossum og straumum. Þar tók hjá þér lax, sem var sterkur og stór, en stærri var hinn, — sem með öngulinn fór! :,: Svo læt ég hér fylgja aðra vísu, sem varð til í sumar við ána (Laxá í Leirár- sveit) eftir erfitt og þreytandi laxveiði- leysis-labb. Það má raula hana undir lag- inu, „Hvað er svo glatt“. Að sjálfsögðu læt ég þig og aðra fé- lagsmenn um að dæma, hvort þessar vís- ur mínar séu hæfar til slíkra nota, sem þú talaðir um. Hve yndisleg er hvíld í grænu grasi í geislum prýddum hvamm við elvarnið, svo órafjærri lífsins mæðu og masi cn mitt í náttúrunnar söngvaklið. — og létt og ört er lax í ána genginn og ljúft og liollt að glíma um stund við hann. — Hve gott er þá að gleyma sér við strenginn fvrir göngulúinn stangarveiðimann! Já, — finnst þér ekki, eins og mér, kæri stangarveiðifélagi, auðvelt að gleyma sér við strenginn. Þú kemur kannske að veiðistað í ánni eftir rnargra klukkustunda erfitt labb, á þungum stíg- vélum, hlaðinn boxum og blýi og út- n troðinni tösku, annaðhvort í veiðikáp- unni eða með hana hangandi einhvers staðar utan á þér, í böndum eða belti, — og ptt! Ég þori nú varla að minnast á það, ef þú hefur verið svo heppinn að „setja í“ einn eða tvo, — ja, ég fer ekki hærra, eins og maður sagði hér í Bridge-inum í gamla daga. Þú kastar af þér öllum pinklum og pokum, boxum og blýi og síðast sjálf- um þér, uppí-loft í grasið. Þú horfir upp í himinninn, eða þú lokar augunum — og þti finnur hvernig Jrreytan líður burt tir líkama þínum og þín göngulúnu bein öðlast smátt og smátt, en öruggt, sinn eðlilega þrótt á ný. Þinn hugur reikar víða, og þar senr þti liggur í grasinu, ertu máske fyrr en varir farinn að glíma við Jrann stóra, sem þú misstir uppfrá áðan! Já, ég var klaufi þá, ég var víst „of frekur á honum“, eða „gaf ég hon- um nokkurn tíma slakt“? Kannske var flugan of lítil? Eða var hún kannske of stór? Nei, þú kemst ekki að neinni nið- nrstöðu, sem betur fer, vil ég segja, þ\ í ef við þekktum lykilinn að okkar dutl- ungafulla laxi, þá mundi viðureign okk- ar við hann verða auðveld og ánægjan og eftirvæntingin Jrar af leiðandi engin. Allt í einu hrekkur þú upp úr hugar- draumum þínum við skvamp úti í ánni, Jni ert ekki líkt Jrví orðinn afþreyttur, en þetta var ábyggilega stórlax! — Þú þrífur stöngina og boxið og — — — Hve gott er þá að gleyma sér við streng- inn fyrir göngulúinn stangarveiðimann! Og vertu nú blessaður, Víglundur minn. Ég vil ekki lengur slóra. En dveldu senr lengst við Doctorinn þinn og dundaðu við „þann stóra". Guðm. Sigurðsson. Veiðimaouri.nn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.