Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Blaðsíða 41

Veiðimaðurinn - 01.12.1954, Blaðsíða 41
húin. Hún lofaði honum að taka og snúa sér við, en brá síðan liðlega við honum með stangartoppnum. Xúðureignin var skemmtileg, enda þótt frúin hefði getað komizt af með nokkru færri ráðleggingar. Eiginmaður hennar, sem endranær var rólyndur og gætinn, missti allt vald yfir sér og varð æstur hvert sinn, sem hún var með fisk á. Hann klessti sér upp að hliðinni á henni, sagði iienni að vinda inn á hjólið, halda upp stangartoppnum, gefa fiskinum eftir og horfa niður fyrir fæturna á sér. Og allt sagði hann þetta með svo miklum há- vaða, að ókunnugir hefðu getað ímynd- að sér að hún væri heyrnarlaus. Og asninn gerði sínar athugasemdir með því að stynja, rymja og sletta eyrunum í allar áttir. Að lokum óð Tom út á grynninguna \ ið straumjaðarinn, færði faglega í lax- inn og sveiflaði honum spriklandi upp á grasbakkann og hélt honum þar föst- um meðan hann var að þjónusta hann með skaptinu á ífærunni. Þetta var falleg lirygna með hústinn maga og reynist tæp 9 pund á pundara Toms. „Þetta er fyrsti írski laxinn minn,“ sagði frt'i Evans hreykin, þegar þau stóðu þarna þrjú og horfðu á spegilfagr- an fiskinn, sem lá við fætur þeirra á grasinu. Jim Evans ætlaði að fara að vekja athygli á því, að laxinn væri enn með lúsinni, þegar nýr rymur heyrðist í asn- anum. „Nú er hann að óska yður til ham- ingju,“ svaraði Tom. „Hann lítur konur liýru auga.“ Asninn hreytti nú um stöðu, sperrti eyrun og horfði á vissan stað neðar í ánni. „Það er líka mjög senni- legt að hann sjái annan tökufisk.“ fim gekk aftur upp í lyngmóana og sótti stöngina sína. Hann reyndi að ganga hægt og stillilega, en veiðivonin knúði liann til að hraða sér. Hann sagði við Tom Walsh: „Svei mér, ef þér eruð ekki húinn að telja mér trú um að asn- inn sé að leiðbeina okkur. Hvar vill hann að ég renni?“ Tom W'alsli brosti. „Það er slæmt að hann skuli ekki vera maður. Hann liefði orðið duglegur veiðiþjófur. Og það er nú til þess að hann sé ekki sístelandi sem ég hef hann úti í eyjunni allt sumarið." „Getið þér ekki tjóðrað hann?“ spurði frú Evans. Hún kenndi dálítið í brjósti um útlagann. „Mönnum hefur ekki enn tekist að finna upp þann hnút, sem hann getur ekki leyst með tönnunum,“ svaraði leið- sögumaðurinn. „Og um leið og liann er latts, gengur hann um og stelur korni, sykri, eplum og perum á hverjum hæ í mílu fjárlægð liérna umhverfis Cushat- rower. Já, liann er mesti vandræðagepill, skömmin sú arna.“ „Hvar itafið þér hann á veturna?“ spurði frúin. Nt'i ciskraði asninn aftur og truflaði samtalið. „Það er hezt að ég renni,“ sagði Jim Evans, og hélt að asninn væri að reka á eftir sér, þótt liann væri sárgramur við sjálfan sig fyrir að trúa þessu. „Þér skuluð ekki taka mark á hon- um, lierra minn,“ sagði Tom Walsh. „Hann er eirðarlaus eins og allir þjc'tfar. En það sakar ekki þótt við hvílum hyl- inu svolítið eftir fiskinn áðan.“ Hann Veidlmaðurinn 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.