Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 22

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 22
Meginið af laxinum í Laxá er frem- ur smár, þó að yfir 20 punda laxar hafi veiðst þar. Stærsti laxinn, sem ég veiddi í þeirri á, vóg 19 pund og fékkst á flugu, Durham Ranger nr. 3, í Kristnapolli. Það mun hafa verið sumarið 1936, er lengi höfðu gengið miklir þurrkar, og áin var svo lítil, að hún var tæpast eða ekki laxgeng, að stórrigningu gerði með miklum vatnavöxtum. Lækir og ár beljuðu kolmórauð um hvern farveg, og jörðin svalg himnadöggina, langþyrst eftir hina miklu þurrka. Stórrigningunni slotaði fyrrihluta dags. Gerði bezta veð- ur og loftið var hreint og tært, eins og jafnan eftir rigningu. Upp úr nóninu greip mig næsta óvið- ráðanleg löngun, að líta á ána, vita hvort farið væri að setja niður í henni og morið að minnka. Eg hafði þá nýlega eignast farartæki, gamlan Chevrolet-bíl, árgerð 1929, allra bezta fararskjóta, fyrir þá vegi, sem þá gerðust. Settist ég nú upp í bílinn, ásamt dætrum mínum tveim, 7 og 5 ára, sem sóttust mjög eftir bílferðum, sem ekki var mót von, á þeim aldri og þeim tímum, er bílferðir voru mikið nýnæmi. Þegar að ánni kom var sýnilegt að talsvert hafði sjatnað í henni, og mórygl- an minnkað til muna. Ég gekk nú út á brúna, gægðist niður í Brúarstrenginn og sá ekki betur en eitthvað væri þar kvikt. Stöngin var í bílnum og fáeinir maðk- ar í dós, frá síðustu veiðiferð. Setti ég nú saman, beitti maðki og kastaði út í strenginn, svona hinsegin, því að ekki átti ég von á, að lax tæki í svona grugg- ugu vatni. Ég hafði þó nokkuð þunga sökku á, því að straumkast var mikið, og strengurinn miklu dýpri og vatnsmeiri en vanalega. Ekki voru nema nokkrir faðmar af línunni komnir út er fiskur var á, sprettharður vel. Stökk hann og strikaði, og hinn eftirsótti, þægilegi veiðiskjálfti læsti sig um hverja taug veiðimannsins. Stöngin var fremur lítil og grönn og lína við hæfi, svo að viður- eignin var mátulega spennandi, og lauk með því að 7 punda, skínandi, nýrunn- inn, allúsugur hængur spriklaði á græn- um árbakkanum. Ekki er að orðlengja það, að þarna tók á skömmum tíma hver laxinn á fæt- ur öðrum. Viðureignin var skemmtileg, íiskarnir nýrunnir og sprækir. Það var aldeilis líf í tuskunum. Laxarnir stukku í ánni og telpurnar hoppuðu í loft upp á bakkanum, í takt við laxana, og ráku við og við upp aðdáunar- og siguróp. Hefi ég aldrei haft jafn áhugasama áhorfend- ur að veiðiskap mínum. Beitan var nú að ganga til þurrðar, en svo var veiðihugurinn gífurlegur, að ekki gaf ég mér tíma til að skjótast heim á bílnum, til þess að sækja maðk. Spurði ég nú eldri telpuna, hvort hún trevsti sér til að hlaupa heim og sækja maðkinn, og hélt hún það nú. Bað ég hana þá að vera fljóta, og tók hún þegar til fótanna og dró ekki af sér. Settist nú sú yngri á þúfu og fylgdist með ferðum systur sinn- ar. Hugsa ég að gamli bíllinn hefði orð- ið lítið fljótari í ferðum en sú stutta, því að eftir ótrúlega stutta stund kom hljóð frá þúfunni: „Hún er að koma, hún er að koma“. Leit ég upp og sá hvar ljós- leitur hnoðri kom þjótandi, sem kólfi væri skotið, niður næstu brekku á veg- inum og nálgaðist óðfluga. Er hún kom 20 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.