Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 32
sér ekki annað samboðið en kynnast
nokkuð þessari hlið málsins, þ. e. íþrótt-
inni sjálfri.
Kastklúbbur okkar hér er hvorki öflug-
Svona leit út við vatnið, sem kastað var á.
ur né fjölmennur, en fer vaxandi. Kast-
mót hafa verið haldin á hverju vori und-
anfarin ár, og um augljósar framfarir er
að ræða frá því við byrjuðum, fyrir nokkr-
um árum, og eiga innanhúss-æfingar okk-
ar að vetrinum sinn góða þátt í því.
Eftir heimkomu mína frá fyrsta kast-
móti I. C. F. reyndi ég að vekja áhuga
meðal beztu kastmanna okkar, á að fara
til Brússel í ár, og fá leyfi stjórnar I. C. F.
til reynslu-þátttöku, þar eð við erum ekki
enn meðlimir í sambandinu, og var það
auðsótt mál. Þegar svo fram á síðastliðið
vor kom, var ákveðið að 8 menn færu
liéðan, þeir Sverrir Elíasson, Halldór F.r-
lendsson og undirritaður. Ennfremur
Magnús Þorgeirsson, sem dórnari, en far-
ið var fram á, að hvert land legði til einn
dómara. Er Magnús því nú eini ísl. al-
þjóðadómarinn í köstum.
Ákveðið var að fara fyrst til London,
og hafði capt. T. L. Edwards, hinn frægi
brezki kastari, lofað að „fínpússa" mann-
skapinn í tvo til þrjá daga áður en við
færum yfir til Brússel, og stóð það allt
lieima, sem hann lofaði, og mun Sverrir
liafa haft mjög gott af þeim æfingum, en
Halldór varð, því miður, að snúa heim í
skyndi, vegna snögglegs fráfalls föður
hans, eftir að lagt hafði verið á stað að
heirnan, svo að nti vorum við aðeins tveir
um þátttökuna eftir.
Til Brússel fórurn við svo daginn áður
en mótið var sett, en það var gert þriðju-
daginn 16. kl. 4 e. h. Þátttakendur söfn-
uðust saman við vatnið, sem fluguköstin
fóru fram á, og þar flutti forsetinn, Myr-
on C. Gregory, stutt ávarp, ennfremur
formaður belgiska kastsambandsins, en
það sá um mótið. Um kvöldið kl. 7 var
svo opinber móttaka í sölum Martini
klúbbsins, sem er þekktur belgiskur
sportklúbbur og aðstóðaði á margan
hátt við undirbúning og framkvæmd
mótsins.
Keppt er í 10 mismunandi keppnis-
greinum, númerað I—10.
Nr. 1. Er þríþætt: Einhendis flugu-ná-
kvæmnisköst, þurflugu-, votflugu-
og rúlluköst (switch). Hitta skal í
fimm 30" hringi á 20 til 40 feta
færi í óreglulegri röð. Nota skal
algengan veiðiútbúnað.
Nr. 2. Er tvíþætt: Einh. flugu-, hitti- og
lengdarköst, samanlagt. Það sama
er að segja um þessa grein og nr.
1, hvað útbúnað snertir.
Nr. 3. Einhendis lengdar-fluguköst.
Stöng ekki lengri en 9i/o fet, línu-
lengd 50 fet minnst, og ekki
þyngri en 42 grömm. (Ekki beint
veiðiútbúnaður).
Nr. 4. Tvíh. lengdar-fluguköst. Stöng
30
Veiðimaðurinn