Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Síða 40
Flutt
Veiðistaðir júní Júií Agúst Alls
Hreimsstaðahyljir 3 1 4
Snagi 3 3
Klettstíuhylur 10 10
Dreyfingar 1 1
Strandastrengur .... 9 8 10
Skarðshamarsfljót . .. 11 11
Karlsoddi 3 3
Glitstaðastrengur . . . í 1 9
Hraunhyljir 39 23 62
Ovissir veiðistaðir . . 6 6
Samtals 55 118 173
Þessi tafla er yfir veiðina á efsta svæð-
inu, þar er bezta veiðin í Hraunhyljun-
um, eins og oft áður. í veiðibækurnar
hafa verið skráðir nokkrir veiðistáðir í
sumar, sem ekki er fullvíst, hvar á að
staðsetja. Einn þeirra, Þorgilsstrengur,
er sennilega á neðsta svæðinu. Hann er
skráður 14. júní, og mun því vera þar.
Þ. 24. ágúst er Kerlingarhólmi skráður.
Þann 28. ágúst er Hesthólmastrengur
skráður, og er það gert af kunnugum
manni, og 30. ágúst er Thoroddsens-
strengur skráður sem veiðistaður. Þessir
þrír síðustu eru færðir á fimmtu töflu
sem óvissir veiðistaðir.
Ef einhverjir, sem lesa þetta, þekkja
þessa veiðistaði, og vita með vissu hvar
þeir eru, þá eru það vinsamleg tilmæli,
að þeir láti skrifstofn S. V. F. R. í té nán-
ari upplýsingar, vegna þess að áætlað er
að gera nýtt kort af Norðurá.
A töflu VI er áð finna þan: flugu-
tegundir og stærðir, sem skráðar eru í
veiðibækurnar, ásamt fjölda þeirra fiska,
sem létu ginnast svo langt af flugum þess-
um, að liægt var að skrá þá í veiðibókina.
Þar er einnig meðalþyngdin á þeim fisk-
um, er veiddust á liverja flugu, eða
þyngd, þegar áðeins er um einn fisk að
ræða. Tuttugu og sjö flugunöfn voru
skráð í sumar, og er það fimm færra en
var 1957, en þó verður það að teljast
sæmilegt safn fyrir þann silfraða að velja
úr. 1957 voru þrjár veiðnustu flugurnar
þær sömu og nú: Black Doctor var með
21 fisk, Blue Carm og Sweep með 20
fiska hvor. Breytingarnar eru þær, að í
fyrra sumar veiðist einn fiskur á Green
Highlander, enginn á Alexöndru, en þrír
fiskar á Saphire Blue, en veiði á aðrar
flugur, sem eru töluvert notaðar bæði ár-
in, er lítið breytt. 1957 voru eftirtaldar
flugur með einn og tvo fiska, en enginn
fiskur veiddist á þær á sl. sumri: Akroyd,
Eady Amherst, Last Chance, Lemon
Grey, Murdock, Professor, Royal Coach-
man, Sir Conrad og sir Richard. Bæði ár-
in er nr. 6 sú flugustærð, sem flestir fisk-
ar veiðast á, 35 fiskar sumarið 1957, en
02 í ár, og er það hlutfallslega allmiklu
hærri tala. Sumarið 1957 voru 28,4 af
hverjum hundrað fiskum veiddir á flugu,
en síðastliðið sumar veiðast 32 fiskar af
hverjum hundrað á flugu. Þetta er því
skref í rétta átt, en því miður helzt til
stutt, með þessum hraða mun það taka
10—15 ár, að ná þeim árangri, er sam-
boðinn getur talizt sportveiðimönnum.
Þeim til hvatningar, sem nota flugu
fyrir agn, en eru ekki ánægðir með ár-
angurinn, skal bent á, að sá veiðimanna-
liópur, sem fékk rnesta veiði í Norðurá
síðastliðið sumar, fékk meira en 60%
af veiðinni á flugu, og annar hópur, er
var með meðalveiði, fékk yfir 70% af
38
Veiðimadurinn