Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 49

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 49
verma liann allan, frá hvirfli til ilja. Hann rennir augum yfir fjörfíinn sinn fagra og lætur þau nema staðar við ótal heillandi sýnir, sem hann einn Jtekkir og alltaf eru að breytast, frá því nóttin réði ríkjum. Þvi Gunnar hefur ekkert sofið. í nótt hefur hann alltaf vakað og horft og hlustað og beðið og — niimið. Hann skynjar því og skilur langtum betur en þeir, sem sofa, hve allt er ein órofa heild, frá almætti þagnarinnar, Jregar eilífðin sjálf virðist dotta um lágnættið, og — jafnvel sólin, sækja nýjan þrótt, og ólýs- anlegan unað, í faðm Ægis, áður en hún hefur sig á loft aftur, til að skapa nýjan dag og nýtt líf. Og nú skulum við fylgj- ast með Gunnari, hvernig liann fer að því, að láta einnig þessar sýnir birtast okkur, eftir leiðsögn Braga og dísarinnar dásamlegu. Við skulum fara að öllu með gát og fylgjast nú vel með. Það borg- ar sig. Þessi hugljúfi óður lieitir: VORMORGUNN. Leiðir dagur lofts um hyl Ijóma’ d haga jarðar. Breiðir fagur birtu til blóma Skagafjarðar. Geislar flœða’ um fjöllin há, fegurð glœðist tinda. Ljósaslœðu leggja d lága hœð og rinda. Lœkir syngja. Hvelfist hd hlíðarbringan mjúka. Grœna lyngið, gráföl strá golufingur strjúka. Um fjall og engi hugljúf hljóð hlýtt og lengi óma. Vorsins engill, lífsins Ijóð lætur af strengjum hljóma. Áarhreiminn, álftahljóm frá œskuheimi kannað. Þig mun dreyma þennan óm þó að gleymist. annað. Yfir síðasta erindið skulum við fara aftur. Og af heilum hug, vildi ég óska þess, lesandi minn, að okkur megi auðn- ast að dvelja sem oftast — og dreyma um æskunnar sólbjörtu heima, hvað sem öðru líður. Júní 1958. Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi. Hvað skyldu þeir segja, þegar þeir sjá þennan á landi? VEIÐIMABURINiy 47

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.