Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 50
Góðir gestir.
HINN 26. ágúst komu hingað til lands,
á vegum Kastklúbbs stangveiðimanna í
Reykjavík, forseti Alþjóða-kastsambands-
ins, Myron C. Gregory og Joan Taran-
tino, heimsmeistari í flugukasti og sam-
eiginlegum árangri tveggja alþjóðakast-
móta. Þeir dvöldu hér til 30. ágúst.
Dagana 27. og 28. ágúst sýndu þeir köst,
upp við Árbæjarstíflu, bæði nreð flugu-
stöng og kaststöng. Einnig flutti Myron
C. Gregory fyrirlestur um kastíþróttina.
Þeir félagar eru frá Bandaríkjunum,
Myron C. Gregory um sjötugt, en Joan
Tarantino tæplega tvítugur, og voru á
leiðinni til Brússel, þar sem þeir tóku
þátt í heimsmeistaramótinu, en komu við
í ýmsum löndum, í þeim tilgangi, að auka
áhuga manna fyrir kastíþróttinni. Þeir
urðu þess vegna nrjög ánægðir yfir þeim
áhuga, sem íslenzkir stangveiðimenn
sýndu með því að fjölmenna upp við Ár-
bæjarstíflu. Fyrri daginn munu hafa ver-
Gestirnir athuga tœkin.
ið á þriðja hundrað áhorfendur og seinni
daginn eitthvað færri, en þann dag rigndi
töluvert.
Það er líka óhætt að segja það, að á-
horfendur urðu ekki fyrir vonbrigðttm,
því að hæfni þessara meistara í notkun
veiðistanga er ótrúleg. Þeir höfðu engar
sérstakar keppnisstengur með sér, en
sýndu köstin með venjulegum veiðistöng-
nm, sem þeir fengu hér að láni. Þarna
sáu menn, hvernig hægt er að láta veiði-
tækin vinna fyrir sig, næstum fyrirhafnar-
laust, ef kunnátta er fyrir hendi.
Ég er alveg viss nm það, að flestir
þeirra, sem sáu þessa snillinga kasta,
þurftu sín eigin augu til þess að sannfær-
ast, um þá gífurlegu yfirburði, sem sá
veiðimaður hefur í notkun veiðistanga,
er æfir sig sérstaklega, fram yfir þann,
sem snertir aldrei stöng nema til veiða.
Þeir eru kannske margir, sem segja sem
svo, að alveg sé óþarfi að kasta betur en
almennt er gert hér hjá okkur, menn
veiði ekkert meira með því.
Með slíkum hugsunarhætti finnst mér
gengið fram hjá mjög veigamiklu atriði í
sambandi við alla stangveiði. í fyrsta lagi
hafa góðir kastmenn möguleika á meiri
veiði en sæmilegir, en — hvað er stang-
veiði? Er það ekki íþróttin að veiða á
stöng. Netiðgefnr t.d. margfalt meiri afla
— en stangveiðimenn nota veiðistöng. Það
virðist því augljóst, að góður kastmaður
hlýtur að hafa meiri ánægju af hverri
veiðiför en liinn, sem ekkert hefur skeytt
um þessa hlið málsins.
Ferð þeirra félaga var farin á vegum
Alþjóða-kastsanrbandsins, til þess að
kynna kastíþróttina og auka áhuga manna
fyrir henni sem sjálfstæðri íþrótt, og unr
48
Veiðimaðurinn