Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 51

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 51
jSagait nf JhÁpoo CJónil. Framhald. OFURSTINN settist í stólinn sinn og tók síðan til máls: ,,Það er orðið langt, Alastair, síðan ég hóf feril minn sem undirforingi, í liinu gamla og góða John Company, en ég man það eins og það hefði skeð í dag. Ég hafði alltaf haft ó- stjórnlega gaman af öllum veiðiskap, og það leið ekki á löngu áður en ég var orð- inn svo hugfanginn af dýraveiðum, að ég bað um og fékk sérstaka skipun í starf við Iandmælingadeildina og var þá skráður í flokk, sem falið var að mæla upp stóran liluta af gersamlega ónumdu og é>rann- sökuðu frumskógasvæði nálægt upptök- um fljótanna Tapti og Narbada. Á ferðum okkar um þessi ónumdu svæði, eyddi ég öllum tómstundum mín- um í eltingaleik við veiðidýr, en af þeirn voru ógrynnin öll þar, í þá daga; og Jxitt ég vteri þá enn mjög ungur maður, var leið áð sýna stangveiðimönnum, hvað mögulegt er að gera með venjulegum veiðistöngum. Ég er heldur ekki í nokkrum vafa um [>að, að heimsókn Jtessara góðn gesta mun bera ríkulegan ávöxt í aukinni kasthæfni íslenzkra stangveiðimanna — því sjón er sögu ríkari. Sverrir Eliasson. ég svo einstaklega heppinn, að ntér tókst að ávinna mér trausta vináttu og skilning frumbyggjanna. Þeir vorn að jafnaði dul- ir og feimnir, en þegar ég átti Iilut að máli, breyttust þeir svo. að ég var ekki fyrr kominn í eitthvert þorpið en frétt- irnar um veiðidýr í nágrenninu bárust að mér úr öllum áttum. Svo var [>að einn brennheitan morg- un á hitatímanum, þegar ég hafði lokið útistörfum mínum, þann daginn, og lét klárinn lötra fót fyrir fót á leiðinni heim í herbúðirnar, að ég reið fram á tvo skóg- arbúa, karl og konu, á mjóum götuslóð- anum. Eiginmaðurinn skálmaði á und- an, með öxi reidda um <>xl og boga og örvar í hendi, en á eftir herra sínum og húsbónda tölti Jx>linmóð eiginkonan — vel vaxin og gerðarleg stúlka af Gónd- ættflokknum, léttfætt eins og hind, með bera útlimi og þrýstinn barm. Á höfði hennar var þung byrði, sem haggaðist ekki. Þegar ég kom nær, tók ég eftir því, mér til mikillar furðu, að þetta var húð af nýflegnu, stóru tígrisdýri, haglega vaf- in saman, og skottið dinglaði fram og aftur niður með annarri síðu konunnar. Þegar hjónin heyrðu hófatak hestsins, nárnu þau staðar og sneru sér við í áttina til mín. Um leið og ég svaraði kveðju Gónd-veiðimannsins \irtist mér hann Veiuimaðurinn 49

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.