Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 58
$UvtjtW Atvik.
MÖRG skrítin atvik koma fyrir í veiðiferðum, og
sum þeirra eru svo ótrúleg, að fæstir geta trúað
þeim nema veiðimenn, sem eitthvað svipað hafa
reynt sjálfir. Aðrir skipa þeim í þann flokk, sem
þeir kalla lygasögur veiðimanna og dettur ekki í
hug að trúa nokkru orði af þeim, fremur en sög-
unum unt stóru laxana, sem við missum. Skulu nú
siigð fáein dæmi af þessu tægi, sem ef til vill gætu
orðið byrjun á slíkum frásagnaþætti hér í blaðinu.
FLUGA TF.KUR FLUGU.
MUNDI ekki mörgum t. d. þykja það
ótrúlegt, að hægt væri að „veiða“ með
flugu aðra flugu, sem fest hefði verið út
í miðri á og veiðimaðurinn orðið að slíta
af sér vegna þess að ógerningur var að
losa hana? Þetta hef ég þó séð mann gera.
Fyrir nokkrum árum vorum við Hans R.
Þórðarson saman að veiðum í Myrkhyl í
Norðurá. Hann stóð á klapparnefinu,
sem gengur út í hylinn ofarlega að sunn-
anverðu og kastaði flugu. Úti í miðjum
hylnum eru klettanybbur, sem rétt flýt-
ur yfir, og tæplega það, þegar áin er orðin
lítil. Hann var með tvíkrækju, Green
Highlander, nr. 3, að mig minnir, og festi
hana svo illa, að hann varð að slíta girnið.
Á þessa flugutegund, og sömu stærð, hafði
veiðst þarna lax kvöldið áður og Hans
hafði einnig orðið var á hana í þetta sinn.
Hann hnýtti því á samskonar flugu aftur.
í öðru eða þriðja kasti finnur hann að
eitthvað snertir fluguna. Hann lyftir þá
svolítið stönginni og finnur strax að það
er hvorki fiskur né festa. Telur því senni-
legast að það sé slý eða eitthvað þessháttar
og vindur inn til þess að hreinsa það af
flugunni. En þegar hann gætti betur að,
kom í ljós, að flugan, sem hann hafði orð-
ið að slíta af sér, hafði ekki kunnað við
s:g aðgerðarlaus þarna úti í ánni og „tek-
ið“ systurflugu sína um leið og hún rann
framhjá. Önglar þeirra voru kræktir sam-
an.
Hefði ég átt þessa flugu, skyldi hún
hafa fengið heiðurssæti i boxi mínu með-
al þeirra útvöldu, sem ég kasta aðeins,
þegar ég tel mest iiggja við.
SLAPP TVISVAR.
ATVIK það, sem nú verður sagt frá,
gerðist í Grímsá fyrir nokkrum árum, og
er heimildarmaður minn Magnús heitinn
Vigfússon, sem sjálfur kemur þarna við
sögu.
Síðari hluta dags, um kl. 6, var Magn-
ús að veiða í Lamhaklettsfljóti, og setti
þar í vænan lax, sem sleit hjá honum lín-
una eftir stutta viðureign. Kom í ljós að
línan var fúin, og fór laxinn með spotta
af henni ásamt girninu og flugunni, sem
var Blue Doctor.
Morguninn eftir átti veiðifélagi Magn-
úsar veiði í Fossinum. Setti hann þar
fljótlega í lax á maðk, að hann hélt, því
maðkur var á öngli hans. Þegar hann
56
Veiðimaðurinn