Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Síða 64
sögðu er vel þegið, e£ einhverjir sencla
greinar, þ<)tt. þeir séu ekki beðnir um
það sérstaklega, umfram það sem gert er
hér að framan.
Við ættum allir að hjálpast að því, að
bjarga því sem mestu máli skiptir í sögu
félagsins frá gleymsku, og meðan það er
ekki eldra en þetta, ætti slíkt að vera auð-
velt, þar eð flestir, sem farið hafa með
stjórn þess, erti enn á h'fi og í fullu fjöri.
Væri ekki tilvalið að nota skammdeg-
ismánuðina til þess að skrá svona
skemmtilegar minningar? Ritstj.
FRÁ AÐALFUNDI L.Í.S,
Aðalfundur Landssambands íslenzkra
stangaveiðimanna var haldinn að Hótef
Borg sunnudaginn 26. október s.l.
Varaformaður sambandsins, Þorgils
Ingvarsson, minntist í upphafi fundar-
ins Hauks Snorrasonar ritstjóra, sem tók
við formannsstarfinu á aðalfundi 1957,
en lézt á árinu, svo sem kunnugt er. Síð-
an flutti varaform. skýrslu stjórnarinnar.
í sambandinu eru nú 17 félög og bætt-
ist eitt við á árinu, Stangaveiðifélag Pat-
reksfjarðar.
Úr stjórn gengu Guðmundur J. Kristj-
ánsson, Rvík og Ingólfur Jónsson, Akra-
nesi. Skoruðust þeir báðir undan endur-
kosningu.
Formaður var kosinn Páll Finnboga-
son, Rvík og með honum eru nú í stjórn-
inni þessir menn:
Þorgils Ingvarsson, Rvík,
Friðrik Þórðarson, Borgarnesi,
Hákon Jóhannsson, Rvík,
Alexander Guðjónsson, Hafnarfirði.
Landssamband ísl. stangaveiðimanna
62 .
hefur, því miður, ekki reynst þess megn-
ugt, að gegna því hlutverki, sem þeir
ætluðu því, er forgöngu höfðu um stofn-
un þess. Liggja til þess ýmsar ástæður,
sem ekki verða raktar liér að þessu sinni,
en margt mundi vera á annan veg en nú
er í veiðimálum okkar, ef öflug heildar-
samtiik veiðimanna væru til.
HUGMYND UM NÝJAN
BIKAR.
SVO sem kunnugt er gaf verzlunin
Veiðimaðurinn S.V.F.R. verðlaunabikar
árið 1947, „til verðlauna fyrir þyngsta
(stærsta) lax, em veiðist á flugu ár hvert
af félagsmönnum í Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur, í þeim veiðivötnum, sem
félagið hefur á leigu“.
Bikarinn er farandbikar og vinnst til
fullrar eignar af þeim, sem hlýtur hann
þrisvar. Hann er enn í umferð, og eng-
inn hefur frarn að þessu hlotið hann
oftar en einu sinni. Hann á því senni-
lega enn eftir að gista marga góða menn
og margir okkar líta hann hýru auga.
Væri það nú ekki tilvalin afmælisgjöf,
þegar félagið verður 20 ára, að gefa því
annan farandbikar, sem sá félagsmaður
hlyti, er veiddi stœrsta laxinn á sumrinu,
þótt ekki vccr.i í á, sem félagið hefði d
leigu? Það er kunnugt, að margir félags-
rnenn veiða utan vatnasvæða félagsins,
og sumir á stöðurn, þar sem stærri laxar
fást en þar.
Þessu er slegið frarn hér til athugunar
fyrir þá, sem kynnu að hafa hugsað sér
að minnast þessa afmælis félagsins með
rausnarlegum hætti, Ritstj.
yrifHMAousiNS'