Bændablaðið - 15.12.2022, Side 104

Bændablaðið - 15.12.2022, Side 104
104 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022 Býli? Staður Staðsett í sveit? Reykhólahreppur Ábúendur? Rebekka Eiríksdóttir, Kristján Þór Ebenezersson og móðir Rebekku, Sigfríður Magnúsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Rebekka og Kristján eiga tvær dætur, Védísi Fríðu og Anítu Hönnu. Védís Fríða býr á Akranesi með kærastanum sínum og syni þeirra, Atlasi Friðrik. Aníta Hanna er í FVA á Akranesi. Hundarnir Salomon og Saga eru líka á heimilinu. Gerð bús? Blandað bú með sauðfjárrækt, mjólkurframleiðslu og æðarrækt. Fjöldi búfjár? Bústofninn er um 650 fjár, 16 mjólkurkýr og rúmlega 30 kálfar í uppeldi og 15 íslenskar landnámshænur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagurinn byrjar í fjósinu og síðan er farið í fjárhúsin. Önnur verk sem tilheyra hverri árstíð taka svo við en núna erum við að moka skít úr fjárhúsunum og fjósinu. Einnig er setið við fjaðratínslu þegar tími gefst til. Seinni partinn er farið í fjárhúsin og svo fjósið. Dæmigerður kvöldmatartími er um áttaleytið. Rebekka vinnur utan búsins einnig. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Þegar vel gengur eru flest öll verkin skemmtileg, sérstaklega þó heyskapur í góðu veðri, smalamennskur og haustragið. Leiðinlegast er þegar það er kalt í veðri að vori og erfiðlega gengur að koma fénu út og það er orðið plásslaust. Einnig ef illa viðrar í heyskapnum og heyin eru verri. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Við teljum að búskapurinn verði með mjög svipuðu sniði Hvað er alltaf til í ísskápnum? Smjör, ostur og hvítlaukssósa. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt/ærkjöt og ostur eru efst á listanum. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Alltaf gaman þegar ný hús eru byggð og tekin í notkun. Líka þegar ný tæki eru keypt sem létta okkur störfin. Einnig var mjög skemmtilegt að fá landbúnaðarverðlaunin ásamt nágrönnum okkar í Árbæ árið 2008. LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Um miðjan desember árið 1955 komust fyrst á síður blaðanna fregnir af drykknum jólaglögg. Var tilefnið Lúsíuhátíð Norræna félagsins þar sem boðið var upp á nýstárlegan drykk að sænskum sið, á íslenskunni kallaður jólaglögg. Taka skal fram að 13. desember, Lúsíudagur eða hátíð ljóssins, er hátíðardagur í Svíþjóð, í anda aðventu og jóla. Það var þó ekki fyrr en um miðjan áttunda áratuginn sem þónokkrir framúrstefnumennirnir auglýstu þennan dáindisdrykk. Heitu rauðvíni hellt yfir rúsínur Til að mynda í Morgunblaðinu árið 1977, rétt fyrir jólin. Kom fram að Hótel Loftleiðir byði upp á nýjung í jólaösinni, í Blómasalnum svonefnda, en þar mætti gæða sér á jólaglögg. Esjuberg, veitingastofa á fyrstu hæð Hótel Esju, bauð einnig upp á slíkt hið sama en í tilkynningu frá þeim kom fram að; „... Jólaglögg og piparkökur er það nýjasta sem Esjuberg býður gestum sínum upp á í svartasta skamm- deginu. Jólaglöggið er heitt rauðvín sem hellt er yfir rúsínur og kanilstangir.“ Með árunum festi jólaglöggið sig í sessi og hefur haldið velli sem jóladrykkur hérlendis í vel yfir þrjátíu ár. Samsetning drykkjarins er reyndar örlítið flóknari en sú sem var lýst hér að ofan, en þó ekki mikið. Megininnihaldsefni eru jú rauðvín, kanilstangir og rúsínur, en til viðbótar eru vanalega negulnaglar, engifer, kardimommur, strásykur, möndlur, appelsínubörkur og smávegis af vanillusykri. Sumir vilja bæta koníaki eða brennivíni út í á meðan aðrir kjósa óáfengt rauðvín eða til dæmis sólberjasaft. Grunnuppskriftin er þó alltaf hin sama á meðan hver lagar hana að sínum smekk. Jólaglögg 9.áratugarins (áfengt) 1 flaska dökkt og gott rauðvín 2-3 kanilstangir 6 stk. negulnaglar 100 g rúsínur 50 g gróft saxaðar möndlur 6 cl ókryddað brennivín eða 4 cl koníak .... svolítill sykur! Hita skal rauðvínið ásamt öllu nema möndlum og rúsínum án þess að láta það þó sjóða. Ef vel á að takast til, þá í eina klst. Velgja skal glöggið stuttu áður en að það er borið inn, bætið í möndlum og rúsínum og smakkið til með koníaki/brennivíni/sykri. Sænskt jólabrauð eða lussekatter Margir borða piparkökur með jólaglögginu en einnig eru vinsælar svokallaðar lúsíubollur. Hér að ofanverðu skrifaðar lúsíubrauð eða á frummálinu lussekatter (einnig lussebullar). Kemur nafnið frá Svíþjóð, en brauðmetið lussekatter eða kettir Lúsíu fengu þá nafngjöf vegna þess að það þótti minna á kött sem hringar sig letilega á góðum stað. Þetta eru bollur eins og þær gerast bestar, sérstaklega fylltar, og um að gera að bæta þeim við hlaðborð okkar Íslendinga um jólaleytið. Lussekatter með fyllingu Taka skal fram að gerð deigsins fer fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti deiggerðar 5 dl mjólk (3%) 50 g ger 1 g saffran Hveiti 520 g eða (8,5 dl) Seinni hluti deiggerðar 150 g smjör (við stofuhita) 170 g flórsykur (2 dl) 2 g salt (uþb. 1/2 tsk.) Hveiti 320 g (5,5 dl) Fylling 250 g möndlumassi 25 g flórsykur (2 msk.) 3 g vanillusykur (1 tsk.) 120 g smjör (við stofuhita) Penslun og skraut 1-2 egg rúsínur smjör ca 2 msk. (brætt) perlusykur ca 2 dl – eða það sem hverjum og einum finnst best Verklýsing Fyrri hluti deiggerðar Hitið mjólkina í u.þ.b. 37 °C. Bætið saffrani og geri saman við þar til blandan er orðin fín. Næst er mjólkin sett saman við hveitið, hnoðað vel í um 5 mínútur. Látið svo deigið undir viskustykki í 15–20 mín. Seinni hluti deiggerðar Blandið því sem eftir er af hráefnunum saman við deigið og hnoðið jafnt með meðalkrafti eða þar til deigið er slétt og glansandi. Ef enginn er aðstoðarmaðurinn í eldhúsinu, skal hnoðað nokkurn veginn þar til örmögnun fer að eiga sér stað – þá fyrst er deigið tilbúið. Setjið það svo aftur undir viskastykki í um 20-30 mínútur. Fyllingin Blandið möndlumassanum saman við flórsykur og vanillusykur. Blandið smjörinu saman við, smám saman í einu þar til fyllingin er þétt í sér. Ef hún verður of þykk má setja hana stutta stund í örbylgjuofn á lágum hita svo smjörið og sykurinn bráðni aðeins. Gæta þarf þó þess að það verði ekki of heitt. Næst skal fletja deigið út, u.þ.b. 45x70 cm á breidd og í kringum 0,5 cm þykkt, á létt hveitistráðu borði. Dreifa skal svo fyllingunni jafnt yfir deigið og brjótið í tvennt. Skiptið deiginu því næst í 1,5 cm breiðar (ekki of þunnar). Rúllið einum helmingnum upp, snúið og rúllið frá hinni hliðinni þannig að myndi „öfugt S“. Svo fer snúningurinn á bökunarpappír en varast skal að hafa þá þétt saman! Skreytið með rúsínum að vild. Látið að lokum hefast almennilega undir viskastykki í 1–2 klst. Bakstur, burstun og skraut Hitið ofninn í 200 gráður. Sláið egg saman og penslið brauðið vel. Bakið í miðjum ofni í 13-15 mínútur þar til bakkelsið er orðið fallega gullbrúnt að lit. Penslið aftur um leið og tekið er úr ofninum – þá kemur extra góður glans ... Látið kólna, penslið enn einu sinni – í þetta skipti með bræddu smjöri og stráið svo perlusykri yfir. Sænskur hjartavermir: Jólaglögg & lussekatter Staður Staður er gamalt prestssetur og ættarsaga okkar hófst hér með því að langafi Rebekku kom sem prestur 1903. Síðan hefur búskapurinn gengið á milli kynslóða og Rebekka er fjórði leggur. Gömul falleg kirkja er á jörðinni sem setur mikinn svip á bæjarstæðið en hún var byggð árið 1864. Bústofninn hefur stækkað með hverri kynslóð og varð mestur þegar Rebekka og Kristján komu inn í búskapinn með foreldrum Rebekku en það var upp úr 2000. MATARKRÓKURINN Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Jólaglögg yljar inn að hjartarótum og því tilvalið í frostinu nú fyrir jólin.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.