Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 11

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 11
Ekki er óeðlilegt þótt bjartsýnar óskir SVFR í sambandi við yfirtökuna stæðu ögn í borgarstjórnarmönnum og þá sér- staklega þeim, sem mestu ástfóstri liöfðu tekið við stöðina og mesta vinnu lagt fram við uppbyggingu hennar. En stjórn SVFR naut þess nú, eins og svo oft áður, að hér er um að ræða fé- lagsskap áhugamanna, en ekki gróða- eða fjárplógsstarfsemi. Flefur það langa tíð verið aðal markmið félagsins, að fyr- ir hvern einn fisk, sem veiddur er, komi a. m. k. 2—3 í ána aftur fyrir tilverkn- að fiskræktar, og væri ánægjulegt ef SVFR. ætti eins margar milljónir króna í sjóði og það er búið að setja af seiðum í leiguár félagsins á undanförnum árum. Enda er viðurkennt af öllum, að þær ár, sem félagið hefur haft lengi á leigu, eru stórum árvissari og öruggari en flestar aðrar faxár landsins. Stjórn SVFR hefur þegar skipað rekstr- arráð fyrir stöðina, en þar er að sjálf- sögðu í forsæti, félagi okkar Ingólfur Ágústsson sá, sem mest allra manna hef- ur unnið að málum eldisstöðvarinnar á undanförnum árum. Með honum eru þeir Þórður Þorbjarnarson efnafræðing- ur,Unnsteinn Stefánsson fiskifræðingur og úr stjórn fél. Guðmundur Hjaltason, sem flestir félagsmenn þekkja fyrir störf hans í klakmálum félagsins. Bindur stjórnin miklar vonir við störf þessara manna og veit þá vandanum vaxna. í lok þessa spjalls vil ég þakka borg- arstjóranum í Reykjavík, Geir Hall- grímssyni, fyrir óbrigðulan stuðning hans í þessu máli, því án hans vefvildar og skilnings væri þetta mál ekki komið far- sællega í höfn. Mörgum öðrum, sem einnig lögðu hönd á plóginn, ber einn- ig að þakka. Það orkar ekki tvímælis, að hér er um að ræða málefni, sem varðar miklu um alla framtíð SVFR. og félagsmenn fá hér einstakt tækifæri til að sýna, hvað í hverjum og einum býr. Agnar Kofoed-Hansen. VEIÐIMENN ! í verzlumim um allt land býður Sportvörugerðin yður: HERCON STENGURNAR og MICHELL HJÓLIN VÍÐFRÆGU, ásamt ódýrari stöngum og hjólum. Einnig úrval af LAXA- og SILUNGAFLUGUM, þar á meðal hár- og straumflugur. — Hverskonar útbúnaður til stangaveiði og viðlegu, til dæmis bússur, vöðlur, tjöld, svefnpokar, „labb-rabb“- ferðaútvarpstæki o. fl. o. fl. SPORTVÖRUGERÐIN Halldór Erlendsson, Mávahlið 41. Simi 183 82. Veiðimaðurinn 5

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.