Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Qupperneq 16

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Qupperneq 16
lega afkomu eldisstöðvarinnar. Vegna velvilja borgaryfirvalda Reykjavíkur verður eldishúsið, með núverandi bún- aði sínum, ekki þungur baggi á rekstr- inum en annar kostnaður er allmikill, vinnulaun, fóðurkostnaður o.fl. Tekju- stofnar eru hinsvegar óvissir ennþá og fara mjög eftir árangri í eldinu. Undan- farin ár liefir klaksjóðsgjald af veiðileyf- um runnið til að greiða gangverð fyrir samningsbundin seiði, sem klakið hefir verið í klakhúsi félagsins. Fyrir mikið og gott sjálfboðaliðastarf klaknefndarmanna hefir þessi seiðaframleiðsla verið út- gjaldalítil og í klaksjóð liefir þannig safn- ast yfir ein milljón króna. Til að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum endurbótum og afkastaaukningu til að tryggja rekstur- inn, þarf þó meira fé og vinnu. Væntir stjórnin þess að aðrir félagsmenn láti sitt ekki eftir liggja þegar að því kemur. Vænta má einhverra tekna af seiðasölu en þó fyrst og fremst af veiðiaukningu, sem gæfi tekjur með veiðileyfasölu. Eftir þeim tekjum þarf þó að bíða frá því að lrrogn eru tekin og þar til að laxinn fer að ganga aftur úr sjó, eða nokkur ár. Er því fyrirsjáanlegt að allmikið fé þarf til rekstursins fyrstu árin. Enn er sá mögu- leiki til tekjuöflunar og jafnframt til að tryggja jafna og góða veiði í ám, að sleppa nreira seiðamagni en ráðgert er að veiðist aftur á stöng og taka það, sem umfram kann að ganga, til slátrunar. SVFR tók við rekstri eldisstöðvarinnar 12. júlí s.l. í haust verður fullsett í hana af ársgömlum seiðunr og seiðum frá í vor af stofni Laxár í Kjós og Leirvogsár. Ennfremur verða klakhúsin við Stokka- læk og við Elliðaárnar fyllt af hrognum, 10 Guðmundiir Bang. en þau rúma á aðra milljón hrogna, í því trausti að hægt verði að reka eldis- stöðina af fullum krafti með samstilltu átaki félagsmanna. Við stöðina starfar nú einn fastráðinn maður, Guðmundur Bang, sem annast hefir eldisstöðina undanfarin ár fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Stiklað hef- ir verið hér á stóru, en ætlunin er að verja framvegis nokkru rúmi í blaðinu fyrir fréttir og fræðslu unr fiskekli og fiskrækt. Stjórn SVFR. Sforsíbumyndin. Myndin á kápunni er frá Elliðaáhum. Séi pai upp að Artúni og eldishúsinu. — Ljósm. B. H. Veiðimadurin.n

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.