Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Page 17

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Page 17
STEINGRÍMUR JÓNSSON: Laxveiði og fiskrœkt í Elliðadnum. Inngangur. Elliðaárnar hafa frá öndverðu verið niiklar laxveiðiár, að tiltölu við vatns- magnið einhverjar hinar mestu, þótt leitað sé til annara landa einnig. Fyrr á öldum áttu ýmis góðbýli ítök í veið- ununr og Viðeyjarklaustur að sjálfsögðu mikinn hlut lengi. En svo kom að því, að konungsvaldið ágirntist veiðina og eignaðist veiðiréttinn allan. Nutu inn- réttingar Skúla fógeta góðs af þvi á sín- um tírna. En svo virðist sem arður þessa veiðiréttár hafi orðið nrinni en vænta mátti og lét því konungur hann af hendi unr miðja 19. öld við jarðeigendur. Þannig keypti Ditlev Thomsen kaupnrað- ur eldri, er var eigandi að jörðunum Bú- stöðum og Ártúni, veiðiréttindi þessara jarða af konungi, Friðriki 7., árið 1853, fyrir 1250 ríkisbankadali, úr Elliðaárvogi frá Gelgjutanga og þar yfir voginn, upp eftir ánum að Skorarhylsfossi eða Stóra Fossi, en landamærin nrillí Ártúns og Ár- bæjar lágu þar þvert yfir ofanvert í Ár- túnshólnra. Benedikt Sveinsson sýslu- nraður að Elliðavatni, sem átti jarðirnar fyrir ofan, Árbæ, Vatnsenda, Elliðavatn o.fl. hefur einnig fengið veiðirétt þeirra aftur frá konungi, því erfingjar lrans selja réttinn Englendingi H. A. Payne árið 1900 og ábyrgjast að þar sé einnig með veiðiréttindi þau, sem jarðirnar Breið- holt og Grafarholt kunni að hafa átt í Elliðaánum. En Thomsen kaupmaður hélt því hins- vegar frarn, að hann hefði eignast allan veiðirétt í Elliðaánum frá konungi, lét þvergirða árnar neðarlega og nýtti veið- ina sem mest hann mátti. Út af þessu spunnust deilur nriklar frá jarðeigendum ofar við árnar og málaferli, sem lesa má um í sögu Reykjavíkur og víðar. Þegar Thomsen sá sitt óvænna í málaferlunum, bauð hann Reykjavíkurbæ forkaupsrétt jarða sinna með veiðirétti, fyrst árið 1885 og aftur 1890,, en bæjarstjórn hafnaði í ba:ði skipti. Síðara árið sekli Thomsen Englendingi að nafni Harry Alfred Payne friðdómara, sem fyrr var nefnd- Veiðimaðurinn 11

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.