Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 25

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 25
dreng sæmdi, orðalag sem var frá Eng- lendingum kornið. Afnot veiðimannahúsanna fylgdi með í veiðileigunni framan af, með húsgögn- um og búsáhöldum frá tíð M. A. Payne. Fylgdi langur listi yfir þessa muni með samningnum. Þetta breyttist síðar, þegar bílarnir komu. Féllu þá afnot húsanna burtu úr samningum. Bærinn seldi hús- munina og og tók að leigja veiðimanna- húsin sérstaklega til sumardvalar. Eitt húsanna við árósinn var þó notað Jianda vörzlumanni. Árið 1925 fól Ziemsen borgarstjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur eftirlit með veiðinni í Elliðaánum. Var þá í fyrsíu hafður sami háttur á og verið hafði. Ár- leg útboð fyrri hluta ársins og nýir samn- ingar hverju sinni. Þá voru aðeins leyfð- ar tvær stengur í senn allan veiðitím- ann, og komst þá sá siður á, að tveir menn voru saman um stöng, svo sem tíðkast hafði nokkuð áður og veiðimenn höfðu fasta vikulega allt veiðitímabilið, þannig að 28 menn komust að veiðinni fyrir utan gesti, sem þeir buðu með sér. í eftirfarandi 3. töflu er sýnd veiðin og leigjendur veiðinnar árin 1925—’31. Eftir 1931 var útboðum hætt og sam- ið við Stangaveiðifélag Reykjavíkur um veiðina fyrst til þriggja ára í senn, en síð- ar til lengri tíma. Var jafnframt til þess ætlast, að Stangaveiðifélagið sæi um út- hlutun veiðidaga þannig, að sem flestir veiðimenn gætu komist að til veiða í Elliðaánum, þótt urn skamman tíma yrði hjá hverjum einum. 3. TAFLA. — STANGAVEIÐIN 1925 - 1931. Veið'i Ár tala þyngd leiga laxa kg. kr. 1925 1178 3710 6000 1926 1787 3906 7200 1927 1747 4377 4000 1928 884 2023 5400 1929 1194 2995 5525 1930 1160 2661 3500 1931 965 1694 3500 Meðaltal 7 ára 1245 3052 Þegar verðlag fór að breytast eftir 1941 ákvað borgarráð leiguna um hvert samn- ingstímabil og stillti henni fremur í hóf, en elti ekki það kapphlaup um hámarks- verð á veiðileigu, sem orðið hafði mjög vart við hin síðustu árin. Leigjandi meðal þyngd Leiga kg. kr/kg Lúðvík Lárusson 3,15 1,62 Stangaveiðifélagið 2,19 1,84 — 2,50 1,05 Lúðvík Lárusson 2,29 2,67 Pétur Hoffmann 2,50 1,85 Stangveiðifélagið 2,30 1,32 — 2,22 2,06 Stangaveiðin á árunum 1936—1952 er sýnd hér í 4. töflu, skipt niður á veiði- svæðin tvö. Þegar heildartölurnar samkv. 1. og 2. dálki eru dregnar upp á línurit er ljóst að veiðin er fremur dvínandi á árunum 19 VEIOIMAOUR'NN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.