Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Page 28
Spurn fór vaxandi. Einu sinni var selt
til útlanda. Það kom pöntun frá Skot-
landi um seiði til að láta í á í Norður-
Irlandi, sem orðin var laxlaus. Afgangur
seiðanna, sem ekki var seldur, var látinn
í Elliðaárnar. Gat það verið 150—500
þúsund seiði árlega, sem látin voru í
árnar á ýmsum stöðum á hverju vori.
Á árunum 1937—39 rannsakaði At-
vinnudeild Háskólans laxagönguna í Ell-
iðaánum, undir stjórn Árna Friðriksson-
ar fiskifræðings. Hóf hann þar merkingar
og athuganir á lífsskilyrðum fiskjar í
ánum. Gaf Atvinnudeildin út skýrslu
um þessar rannsóknir 1940. Er þar kom-
i/t að þeirri niðurstöðu, að klakið hafi
viðhaldið stofninum í ánum, sem ella
liefði mátt búast við að skerðast myndi
verulega við vaxandi orkuvinnslu þar.
Er þá ekki aðeins átt við klakið frá
1932, heldur og seiðaflutninginn frá
Alviðru um 10 ár þar á undan. Auk þess
var ávallt nokkuð náttúrlegt klak í án-
um alla tíð, frá þeim laxi, sem dvaldi
vetrarlangt í ánum, enda þótt hann gæti
ekki gengið að neinu ráði upp fyrir Ell-
iðavatnsstíflu eftir 1926.
Veiðin í klakið hefur alla tíð farið
fram á frumstæðan hátt, með ádræíti
að loknum laxveiðitímanum. Er þá
byrjað á neðra veiðisvæðinu, einkum
í Móhyljunum neðan aflstöðva. Hafa á
því svæði náðst laxar svo hundruðum
skifti, enda þótt stangaveiðimenn hafi
talið víst, að þar væri enginn lax eftir,
hann myndi vera genginn upp fyrir.
Mætti gizka á að veiðin á neðra svæð-
inu væri varla meiri en 50 hundr-
aðshlutar eða að jafnmikið væri eftir á
neðra svæðinu og þar hefði veiðzt.
Lax, sem þannig er veiddur með á-
drætti til klaks, er skilinn, hrygnur frá
hængum og geymdur í kistum á ýms-
um hentugum stöðum í ánum, þar til
að hrygningu kemur síðar á hausti, oft-
ast nálægt miðjum nóvember-mánuði.
Veiðin í klakið fyrstu 20 árin er sýnd í
5. töflu. Hrognaljöldinn er mældur í
lítrum og talinu 10.000 í lítra. Þar er og
sýndur árangur klaksins þ. e. seiða-
fjöldi, sem fengizt hefur úr hrognun-
um. Sýnir hann yfirleitt góðan árang-
ur, nema eitt árið, 1938. Þá fékkst ekki
nema um þriðjungur hrognanna út úr
klakinu. Má vera að frost um hrygn-
ingatímann hafi valdið þar nokkru um
við þau frumstæðu skilyrði, sem við
var búið. Að lokinni hrygningu er lax-
inn merktur og látinn aftur í ána.
Af 5. töflu má sjá að til jafnaðar hef-
ur þurft 203 hrygnur til að fá 902.000
hrogn. Fást þá sem næst 4500 hrogn úr
hverri hrygnu. Kemur það heim við þá
tölu, að hrygnan hafi jafn mörg þúsund
hrogn sem hún vegur pund. Veitt var til
jafnaðar 533 hængar og hrygnur. Svarar
það til að þurfa muni 700 hænga og
hrygnur þessarar stærðar til klaks á mill-
jón seiðum, miðað við 85% afköst klak-
stöðvar.
Stórflóð i Elliðannum 1962.
22
Veiðimaðurinn