Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 44

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 44
Þversnið nf eldisþró. myndar hvítleita útfellingu, sem leysist upp og berst með klakvatninu yfir hrogn- in og lokar þeim, þannig að eðlileg þróun þeirra stöðvast og hrognin eyði- leggjast. Hér var um hrapalleg mistök í efnisvali að ræða, sem urðu þess vald- andi, að skáparnir eru ónothæfir. En það er sannfæring mín, að klakskápar af sömu gerð, og hér er um að ræða, en smíðaðir úr ryðfríu stáli og trefjaplasti, séu jafn- öruggir og klakstokkar. I klaksalinn verða nú settir upp klak- stokkar með 20 klakbökkum, sem rúma um 150 þúsund hrogn. Klakvatnið verð- ur hitað upp í 7—8° c til að stytta klak- tímann, þannig að byrjunareldi geti haf- ist í apríl. I klaksalnum hefur verið komið fyrir 12 eldiskerjum fyrir byrjunareldi. Eldis- kerin eru 60x60 cm að innanmáli, eða 0,36 m2 hvert. Þessi eldisker má nota til að stytta klaktímann, með því að taka augnhrogn úr 4°c heitu klakvatni og flytja yfir í kerin og ljúka klakinu þar við 7—8°c vatnshita. Seiðunum er svo haldið í þessum kerjum í 3—4 vikur og þar hefst byrjunareldi við um 8° c vatns- hita. Þegar seiðin hafa náð tökum á fóðrinu má hækka vatnshitann upp í 12 — 13°c á tiltölulega skömmum tíma, en við það hitastig dafna seiðin bezt. A sama hátt má taka kviðpokaseiði í byrj- unareldi í þessi ker, en gæta verður 38 þess, að eldisvatnið sé sem næst við sama hitastig og klakvatnið, sem seiðin flytjast frá. Kviðpokaseiði virðast vera mjög við- kvæm fyrir snöggum hitabreytingum, sem geta leitt til afdrifaríkra dauðsfalla og vanþroska á seiðunum. I eldiskerjum af þessari stærð má halda 5—8000 seiðum í byrjunareldi alltað 3—4 vikur. Kerin henta vel að því leyti, að auðvelt er að fylgjast með þroska seið- anna ogdauðsföllum, en eldið krefst mik- illar nákvæmni í fóðurgjöf og umhirðu. Byrjunareldi er eitt af mikilsverðustu þáttum í rekstri eldisstöðva og undir- staða að góðum árangri. Þess vegna ber að sinna því með sérstakri ástundun og vandvirkni. I eldissalnum, sem er 147 m2 að flatar- máli, eru 9 steinsteyptar þrær 3X-8 m að innanmáli. Eldisrýmið er sem næst 80 m2. Á meðfylgjandi mynd er grunnmynd og þversnið af eldisþró með aðrennsli- og frárennslistokkum. Þrærnar eru steyptar um stálmót og sérstaklega vandað til steypunnar, þann- íq; að vegmr og botn er með sléttri áferð og án steypugalla. Þrærnar eru málaðar að innan með botnmálningu, sem ver gróðurmyndun, en það er mjög mikil- vægt og auðveldar sjálfhreinsun á hvers konar óhreinindum, er lterast í þrærnar. Vatnið er leitt frá aðrennslisstokk í hverja þró um þrjá 1 14" rörbúta. Þróar- megin eru skrúfaðir á rörbútana deyf- arar sem má hagræða fyrir hentugustu vatnsdreifingu. Frárennsli er úr miðri þró um rist, sem er hringlaga og um 50 cm í þvermál. Grófleiki ristarinnar er valinn með tilliti til seiðastærða og er venja að skipta um Veiðimaburinn

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.