Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Side 45
Eldisbrar i eldishúsinu. Sjálfvirkur fóðrari sést neðst á myndinni. Ljósm.: Oddur H. Þorleifsson.
rist við talningu og flokkun á seiðum.
Undir ristinni er skál og frá henni 3"
rör, sem liggur yfir í frárennslisstokk.
Vatnsstreyminu um þrærnar er stjórn-
að af vatnshæð í aðrennslisstokk, en
vatnshæðinni í þrónunr af halla á frá-
rennslisröri í frárennslisstokk.
í hverri þró má halda allt að 3000
gönguseiðum (25—30 gr), eða samtals í
9 þróum eldishússins 27000 gönguseið-
um. Þessi ásetning er í efri mörkum
þeirrar ásetningar í eidisþrær, sem ráðlagt
er, eftir reynslu erlendis, en hún getur
gengið við góð vatnsskilyrði og hóflegan
vaxtarhraða hjá seiðunum.
Við fyrstu tilraun á eldi kviðpokaseiða
í eldisþrónum varð ljóst að þær hent-
uðu ekki vel fyrir byrjunareldi. Seiðin
þroskuðust seint, og örðugt var að haldá
þrónum hreinum vegna takmarkaðs
rennslis um þær. Þetta leiddi til þess, að
sett voru upp 6 plastker undir suðurvegg
eldishússins. Eitt kerið er 2x2 m, en
hin hringlaga með 2 m. innanmáli. Eldis-
rými plastkerjanna er sem næst 20 m2, og
þar má halda allt að 50—60.000 seiðnm
í eldi upp í 2 gr. seiðaþunga. Upphaf-
lega vöru kerin sett upp fyrir sumareldi,
en brátt var ljóst að hentugt var að nota
þau einnig fyrir vetrareldi og byggt
yfir þau með báruplasti á röragrind.
Eldisrými innanhús, þ. e. a. s. í steypt-
um þróm í eldissal og plastkerum í við-
byggingu er um 100 m2, en eldisrýmið
má auka um 40—52 m2 með 2x2 m plast-
kerjum, sem koma má fyrir yfir steyptu
þrónum.
T eldishúsinu er rúmgott fóðurher-
Veipimaðurinn
39