Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 15

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 15
Sturla Friðriksson Veiðivargar Að veiðitíma loknum á haustin hættir að mestu umferð meðfram ánum og kyrrð færist yfír hefðbundin veiðisvæði, sem barin hafa verið og kembd með ýmsum veiðarfærum sumarlangt. Silungslontur og laxaseiði telja sig loksins óhult fyrir tál- beitum og veiðivélum. Þau þurfa jafnvel ekki lengur að óttast steypiárás ofan úr há- loftunum, því krían er fyrir löngu horfin suður í lönd. Ekki skyggir straumöndin heldur lengur vatnsflötinn, því frávillings- ungar, sem lengi höfðu haldið sig í nánd við fossinn, hörfuðu til sjávar undan síðasta haustflóðinu. Umhverfí árinnar virðist því vera að leggjast í deyfð og dvala. Þar sem Laxfoss í Norðurá er yfír tuttugu kílómetra frá sjó, er varla von á því, að þangað venji margir strandbúar komur sínar og lífgi þar með upp á einhæfni haustmánaða við ána. Neðan frá sjó er ekki að vænta neinna gesta úr flæðarmálinu og þeim mun síður einhverra útskerjabúa. Þess vegna mátti það furðu sæta og teljast til tíðinda, þegar sá atburður gerðist hinn 16. september á síðastliðnu hausti 1989, að all-framandi kumpánar birtust við Laxfoss og tóku að veiða af miklu kappi og sérstakri áfergju og brutu með því allar góðar hefðir og gildar veiði- reglur og bönn. Jafnvel gamalreynd sil- ungsbranda, sem var öllum færahnútum kunnug og hafði staðið af sér allar orma- Dr. Sturla Friðriksson er náttúrufrœðingur og hefur lálið umhvefismál til sín taka og unnið að ýmsum vistfraðilegum rann- sóknarverkefnum. Hann er veiðirétlar- eigandi við Norðurá í Borgarfirði. ginningar sumarsins, var nú upprifin á augabragði. Breiða svarta skugga bar snögglega yfír hylji og pytti og í einu vet- fangi var búið að veiða þennan lífsreynda smásilung án þess að hann kæmi við nokkr- um vörnum. Sömu örlög hlutu margir lagsbræður hans úr kvörninni. Ógnvekj- VEIÐIMAÐURINN 13

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.