Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Blaðsíða 43
un Atlantshafslaxins, ráðuneytismenn í
sjávarútvegsmálum, sportveiðistofnanir
og fjármálaöíl. Mér var alls staðar vel tekið
og ráðuneytisstjórinn í Washington sagðist
sjálfur vera að vinna að sams konar hug-
myndum um að kaupa upp úthafsveiði-
kvóta á laxi í Kyrrahafi.
Þá hafa talsverðar óformlegar viðræður
og samtöl farið fram við ákveðna aðila í
Færeyjum og Grænlandi.
Fundur með Færeyingum
Fyrsti viðræðufundurinn við Fær-
eyinga var haldinn 9. október. A þessum
fundi voru mættir frá þeim fulltrúar þeirra
samtaka útgerðarmanna sem hafa með lax-
veiðikvóta Færeyinga að gera og úthlutun
hans.
Fundurinn tókst í alla staði prýðilega og
sjónarmið skýrð á báða bóga. A þessum
fundi lagði ég fram erindisbréf þar sem
óskað er eftir formlegum viðræðum um
kaup okkar á kvótanum. Undir þetta bréf
rituðu auk mín f.h. Laxárfélagsins, for-
svarsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
Landssambands stangaveiðifélaga, veiði-
réttareigenda, fiskeldis- og hafbeitarstöðva
og Stéttarsambands bænda. Þau sjónarmið
sem ég skýrði á fundinum voru eftir-
farandi:
Sjónarmið Islendinga
Minnkandi veiði. Stangaveiði á laxi
hefur á þessum áratug minnkað um rúm
23% miðað við næsta áratug á undan, eða
úr 422 þús. löxum í 325 þús. laxa en það var
einmitt árið 1979 sem Færeyingar hófu
úthafsveiðar sínar á laxi.
Ég benti einnig á þá sorglegu staðreynd
að einmitt á yfirstandandi áratug hafa
ræktunaraðgerðir Islendinga á laxi staðið
í hvað mestum blóma og geysimiklu fé
varið til þeirra í flestum laxahéruðum
landsins.
Næst benti ég á þá miklu þýðingu sem
lax- og stangaveiði almennt hefði fyrir
veiði- og útivistarfólk á Islandi úr öllum
stéttum þjóðfélagsins, að fólk á öllum aldri
stundaði hér stangaveiði og félög, klúbbar
og veiðiholl væru í velflestum bæjarfélög-
um hringinn í kringum landið. Þá væri
stangaveiðin mikilvæg fyrir bændur þessa
lands og uppistaða í tekjum margra smærri
sveitahreppa. Auk þess benti ég á þá þróun
fáuruj
Fluguhjól sem sóst er eftir.
Fæst í næstu
sportvöruverslun
Einkaumboð
I. Guðmundsson & co hf. |
mar: 24020/11999.
VEIÐIMAÐURINN
41