Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Blaðsíða 41
Grænlendingar veiða sem kunnugt er lax í
sjó með netum á meðan Færeyingar veiða
lax í sjó á línu.
Bent hefur verið á grásleppunet sem
stundum eru í sjó langt fram eftir vori,
þorskanet og trossur sem týnast í óveðrum
og óhöppum, og fleira. Sum af þessum
netum fyllast fljótlega af þara og sökkva til
botns, hef ég eftir sjómönnum. Ég hef rætt
við fjölmarga aðila hér innanlands og utan
og tel að gera þurfi ítarlega rannsókn á
skaðlegum áhrifum drauganeta og dettur í
hug hvort það væri ekki einmitt verðugt
verkefni fyrir Landhelgisgæsluna okkar.
Mín skoðun er sú að við Islendingar
ættum alvarlega að skoða möguleika á að
taka hreinlega upp algjört bann við allri
netaveiði sem aðalreglu á sjó og vötnum
eða setja mjög strangar og þröngar reglur
um hvers kyns notkun þeirra.
Ég spái því að raddir um algjört neta-
veiðibann verði æ háværari á alþjóðafund-
um og hjá náttúruverndarsamtökum á
næstu árum, en margir telja að drauganet
og ólögleg net valdi meiri skaða í sjónum
en nokkuð annað og víst er að heilu haf-
svæðin eru orðin þvergirt af alls konar net-
um. Ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neyti í Washington hafði mörg ófögur orð
um Kyrrahafíð í þessum sambandi á fundi
verslunarráðsins þar í borg í september
síðastliðnum.
Uthafsveiðar og kvótakaup
Þá kem ég að aðalefni þessarar greinar,
sem er löglegar úthafsveiðar og kaup á
laxveiðiheimildum í sjó.
Flestir vita að tvær nágrannaþjóðir hér
sín hvorum megin við okkur stunda út-
hafsveiðar á laxi. Við í Laxárfélaginu vild-
um því stíga skrefið til fulls í ræktunar-
málum okkar og baráttunni gegn sjóveið-
um og ákváðum hreinlega að beita okkur
fyrir því að sjóveiðum verði hætt, með því
að kaupa upp kvótaheimildir þeirra Fær-
eyinga og Grænlendinga.
Málið er að sjálfsögðu mjög flókið og við
byrjuðum á því að leita stuðnings hags-
munasamtaka hér innanlands sem var að
sjálfsögðu auðfenginn. Því næst leituðum
við til hagsmunaaðila í flestum þeim lönd-
um sem eiga laxveiðiár sem Atlantshafslax
gengur í. Undirtektir voru þar einnig frá-
bærar, sérstaklega hjá samtökum í Kanada
FLUGUVESTI
H0RGÁRD
MEÐ ALLT TIL TAKS
Norska Hörgárd-fluguvestiö er handhœg birgöa-
geymsla veiöimannsins. í fimmtán vösum vestisins
hefur hann allt til taks og þótt allir vasar séu troönir,
þrengir vestiö ekki aö líkamanum í hita leiksins.
Til móts við þann stóra í Hörgárd-fluguvesti.
VEIÐIMAÐURINN
39