Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 47

Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Side 47
stöðu að afskaplega mikilvægt væri fyrir þær veiðar að hafa bátana hreina og alls ómengaða af lykt af öðrum fiski, og að slíkt hefði mjög mikil áhrif á veiðihæfni lín- unnar. Á Grænlandi ræddi ég við fjölmarga aðila til að undirbúa kvótamálið, meðal annars ráðuneytismenn, fiskifræðinga og sérfræðinga sem vinna að því að gera at- vinnulíf fjölbreyttara í strjálbýlum byggð- arlögum. Forstjóri Grænlandsverslunar- innar lýsti yfir stuðningi við þetta verkefni og bauð mér góða aðstoð. Málið er þó enn á viðkvæmu stigi og formlegt erindi hefur enn ekki verið lagt fyrir grænlensku stjórn- ina. Ymis teikn, þar á meðal samþykkt Færeyinga, gerir það að verkum að ég á von á því að slíkt gæti orðið fljótlega. Sameinumst allir Þá langar mig að geta þess að haft hefur verið samband við NASCO-skrifstofuna í Edinborg og er hún í viðbragðsstöðu að koma inn í þetta mál þegar við teljum heppilegt. Þá eru hagsmunaaðilar hér á íslandi og í Noregi, Svíþjóð, Bretlands- eyjum, Bandaríkjunum og Kanada byrj- aðir að kanna peningahliðina. Fundur verður í okkar undirbúningsnefnd og því næst verður Júlíusi Sólnes ráðherra kynnt málið en hann verður sem kunnugt er um- hverfismálaráðherra og fer þegar með mál- efni sem tilheyra embætti samstarfsráð- herra Norðurlandaráðs. Hinn 15. og 16. nóvember er mér síðan boðið að sitja stjórnarfundi hjá Inter- national Salmon Organisation og Atlantic Salmon Federation og kynna þessi mál frekar. Þessi samtök hafa þegar lýst yfir stuðningi við þetta verkefni okkar íslend- inganna. Nú fer að koma að því að laxveiði- unnendur verði að fara að skoða sín pen- ingamál alvarlega og ég vona að allir sam- einist um það að gera það myndarlega og að enginn skerist úr leik. Lokaorð Ég vil að lokum segja þetta. Málið er enn á mjög viðkvæmu stigi og má ekkert út af bera. Óheppilegar og ónákvæmar fréttir geta skemmt fyrir okkur, en við þekkjum öll af eigin reynslu hvað laxveiðimálin eru viðkvæm hjá okkur heima í héruðum. Ég legg áherslu á að þessi samningamál verði undir forystu okkar Islendinga, en við munum taka fullt tillit til ábendinga og sjónarmiða samstarfsþjóða okkar. Vonandi tekst að koma málinu í höfn á allra næstu mánuðum. Gunnar Rósinkranz með fallegan vorlax úr Norð- urá, 10 punda hrygnu af Brotinu H.júní. Liósm. Stefán Á. Magnússon. VEIÐIMAÐURINN 45

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.