Veiðimaðurinn - 01.12.1989, Blaðsíða 75
sumar. Má segja að ég hafi frétt um laxa
með netaförum úr flestum laxveiðiám
landsins.
Slík lögbrot eru að sjálsögðu gjörsam-
lega óþolandi og þarf að taka á þeim með
festu, ekki síður en innbrotum og öðrum
þjófnaði.
Við munum fara þess á leit við alla fjöl-
miðla landsins að þeir láti yfirskrift þessa
fundar „Eigi má veiða lax í sjó“, ganga sem
rauðan þráð í gegnum alla umfjöllun um
laxveiði á næsta starfsári.
Böðvar Sigvaldason, formaður Lands-
sambands veiðifélaga mun ræða þennan
málaflokk sérstaklega hér á eftir og einnig
munum við álykta um hann í lok fundar-
ins.
Sjávarafli Færeyinga og
Grænlendinga
Aldrei hafa fleiri merktir íslenskir laxar
fundist í veiðum Færeyinga og Grænlend-
inga en á s.l. ári.
Tumi Tómasson fiskifræðingur hefur
tekið saman mjög svarta skýrslu um málið
og mun flytja okkur þann boðskap hér
á eftir.
í framhaldi af erindi Tuma mun Orri
Vigfússon varpa nýju ljósi á áður ókann-
aðar hugmyndir til að uppræta þessar út-
hafsveiðar.
Stöndum vörð
í ársskýrslu minni 1987 hvatti ég allt
stangaveiðifólk til að standa vörð um hina
fjölskrúðugu en viðkvæmu náttúru lands-
ins og koma ábendingum um allar þær
breytingar, sem við verðum vör við, til
stjórnarinnar, sem síðan ber skylda til að
fjalla um þær eins faglega og henni er kost-
ur og vísa málum í þá farvegi sem taldir eru
farsælastir.
Ég vil í þessu sambandi nota þetta tæki-
færi til að þakka Birgi Steingrímssyni á
Húsavík fyrir stórmerka grein sem hann
skrifar í Víkurblaðið á Húsavík, þ. 31.
ágúst undir fyrirsögninni „Mývatni verð-
ur aldrei fórnað“.
Það vildi svo einkennilega til að við
Birgir sátum báðir á sama tíma í sinn
hvorum landshlutanum skrifandi um
sama efni án minnsta samráðs. Grein mín
birtist í 130. tbl. Veiðimannsins.
Lífríki Laxár hefur trúlega aldrei verið í
meiri hættu en nú, að því virðist nú vera
sótt úr öllum áttum.
Talið er að í sjónum fyrir utan Laxá hafi
veiðst 300 laxar, Færeyingar taka stóran
toll af stofninum, tillögur hafa komið fram
um að flytja laxa upp á hin viðkvæmu
heimkynni urriðans, hundruðum tonna af
áburði hefur verið dreift á Mývatnsöræfi
og Krákárbotna, allt frárennsli frá þessari
miklu byggð sem orðin er við Mývatn
rennur beint út í hraunið sem er eins og
gatasigti, Kísiliðjan hefur verið talin skað-
valdur og síðasta röskun sem fréttst hefur
um, er bygging alþjóða flugvallar á bökk-
um Laxár!
Látum þessa upptalningu nægja en
hlýðum í þessu sambandi á lokaerindið úr
„Óður til íslands" eftir Hannes Pétursson:
Ó, dunandi eyja
sem á dögum sköpunarinnar
ennþá í smiðju
elds, kulda og vatns
engan stað á jörðu
eigum vér dýrari
því þetta land
var sál vorri fengið til fylgdar.
Landssamband veiðifélaga
Samstarf við veiðiréttareigendur hefur
verið gott. Ég sótti fund hjá stjóm þeirra að
VEIÐIMAÐURINN
73